Það er búið að rigna talsvert mikið síðustu viku sem sést svo sannarlega á ánni okkar, sem hefur flætt yfir tún og bakka, eins og sjá má á þessum myndum sem ég tók á föstudaginn. Ég sá samt strax í gær að það hafði sjatlað í henni svo við höfum engar áhyggjur strax en það styttist í október og það var í október 2017 sem flóðið mikla varð hérna hjá okkur. Og þó það sé búið að vera sól og yfir 20 stiga hiti um helgina þá spáir rigningu aftur á þriðjudaginn og alla næstu viku svo það verður spennandi að sjá hvað gerist þá.
En hérna eru myndir frá því á föstudaginn 5. sept. 2025. Njótið!
Fyrsta myndin er tekin í Mandal af bryggjunni sem Bravo liggur við, ég varð bara að fara og skoða hvernig lítur út þar, þegar svona mikið er í ánni. Það væsti ekki um Bravo en það var allt fullt af trjám fljótandi niður ána og búin að festa sig við bryggjuna og liggjandi utaní bátum þarna, ég lét nú hafnarstjóra vita af þessu til að þeir gætu sent mannskap að hreinsa til í kringum bátana.
Á leiðinni frá Mandal til Øyslebø stoppaði ég og tók þessar myndir, tréin standa venjulega á túni en ekki úti í á.
Þið sem þekkið okkur vel, vitið að við teljum múrsteina þegar hækkar svona verulega í ánni, núna teljum við 9 en venjulega eru þeir 12, í flóðunum miklu voru þeir bara 4. Svo þið sjáið að þó það sé mikið vatn þá er nóg pláss ennþá, eða þannig.
Eins og þið sjáið á skiltinu sem er þarna við brúnna okkar, þá hafa 3svar sinnum verið stórflóð hérna, en þau fyrri 2 sem voru mun meiri en 2017 gerðust áður en þetta svæði var byggt. Þannig að þegar heimilað var að byggja þarna íbúðarhverfi þá var þetta alveg vitað. En samt ekki, því við erum að tala um að er friður á ánni frá 1892 til 2017 og ég hef líka heyrt að hluti af ástæðunni fyrir flóðunum 2017 hafi verið vegna mannlegra mistaka við stífluna hérna fyrir ofan.
Þetta er tún þar sem hestar eru oft á beit, en nei nei, þeir eru ekki á beit núna hérna.
Þangað til næst, ykkar Kristin Jona

NET.jpg?rotate=0&etag=%22494faf-68bd2d72%22)
NET.jpg?rotate=0&etag=%224eeff3-68bd2d72%22)
NET.jpg?rotate=0&etag=%2244a20a-68bd2d72%22)
NET.jpg?rotate=0&etag=%224d26c8-68bd2d72%22)

















