Við erum með hérna í Noregi svokallaðan fiskibíl sem er í raun eins og ísbíllinn nema þessi selur fisk frá Norður Noregi og við höfum aldrei fengið eins góðan fisk og hjá þeim, og ekki verra að þeir láta vita þegar þeir eru næst á ferðinni svo maður geti spáð í hvað eigi að kaupa þá. Við erum búin að prófa lúðuna, laxinn, þorskinn, þorsk í raspi og fiskikökur gerðar úr steinbít og graslauk, og ég er ekki mikil fiskibollukona og líkar almennt ekki tilbúnir fiskréttir þar sem oft er notaður lélegur fiskur í þá en þetta er sjúklega gott og að sjálfsögðu svo einfalt þar sem búið er að forelda kökurnar. Útfærslan í dag, var að nota eitthvað sem til er í ísskápnum til að gera þær fancy og mér tókst sko bara vel upp, alla vega finnst mér þetta geggjað gott og mæli með.
Á morgun er grænmetissúpa því brokkolíið var orðið eitthvað tæpt. Þar sem við búum aðeins út á landi þá verslum við á viku til 10 daga fresti í stórmarki inní Mandal og oft er ég dugleg að gera matseðill og innkaupalista en hef ekki gert það eftir sumarfrí, en ég passa mig alltaf á að elda úr því sem er orðið tæpt í ísskápnum því þó við séum ekki mjög umhverfisvæn, þá hendum við ekki mat.

