Ég skellti mér aftur í göngutúr með myndavélina, bauð Elvis með mér sem var ótrúlega næs, því ég er búin að fatta það að ég hef nánast ekki farið út að labba með myndavélina síðan Erro dó, svo þá er um að gera að fá lánaðan hund hjá nágrannanum til að ýta við mér. En jú nágranninn er sá sem fór nú oft, oftar en ég með Erro en nú er hann á hækjum svo þá verður maður að aðstoða aðeins. En ég labbaði uppað fossinum sem er 10 mín frá okkur og var að vona að hann væri í meiri klakaböndum en hann var, en jú jú það er alltaf fallegt þegar búið er að snjóa aðeins en þetta var þó ósköp lítið, það spáir meiri snjókomu svo ég skrepp bara aftur út fljótlega.