Þegar við löbbum hérna uppá fjall eða til Marli þá löbbum við í gegnum mosaskóginn á leiðinni niður hinum megin, ég elska að vera þarna og taka macro myndir og bara hlusta á ekkert og sjá hvað náttúran er mögnuð. Reyndar brest ég alltaf í söng þegar ég er þarna og eru það til skiptist tvö lög sem ég syng, fyrra er lagið Álfar eftir Magnús Þór og seinna er lagið um Benedikt búálf en bæði fjalla þau um álfa og ævintýri og þannig upplifi ég þennan skóg.

Þessar drekaflugur fá að fljóta með, þó þær eigi heima í garðinum mínum en ekki uppá fjalli í mosaskóginum. Ég er búin að vera að reyna að mynda eina rosalega stóra drekaflugu með rauðan hala en ekki náð henni, hún hverfur alltaf þegar ég kem út mynd stóru linsuna á myndavélinni. Og nú er hæpið að ég nái henni því það spáir ekki meira 20 stigum og glampandi sól með raka, en það eru kjöraðstæður fyrir drekaflugurnar.

Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna