Það þarf nú ekki að segja margt um skonsur, annað en að þær eru mjög góðar, henta vel sem morgunmatur með alls konar áleggi, passar meira að segja að setja á þær beikon og egg og allt, ef sá er gállinn á manni. En bestar finnst mér þær alltaf bara með smjöri og osti.