Útsýnið frá hostelinu okkar, já við vorum á hostel en ekki hóteli, Kristín Jóna tók ekkert eftir því bara að það væru svalir og í miðbænum. Skoða betur næst, því hostel er ekkert fyrir fólk yfir 60 ára.
Svo tókum við túristan á Köben, keyptum okkur miða á hopp on - hopp off en þar sem það voru svo mörg skemmtiferðaskip þá var illmögulegt að fá pláss í bílunum og bílstjórarnir orðin alveg gal og farnir að öskra á ferðamennina.
















