Já ég kom sjálfri mér á óvart enn einn daginn, er reyndar búin að vera að horfa á norska matreiðsluþætti en að sjálfsögðu er þetta ekkert sem kom fram þar, en ég fékk hugmynd....... já há hugmynd að nýjum fiskrétti og eins og svo oft áður og eins og kom fram í þessum þáttum þá er svo mikilvægt að nota öll skilningarvitin, lykt, sjón, og bragð. Það er auðvitað staðreynd að fallegur matur smakkast betur. Sama með lykt, ef matur lyktar illa eins og til dæmis kæstur hákarl, þá smakkast það ekki vel. En jú jú kannski ef þú drekkur brennivín með. Alla vega þessi réttur er jafn góður og hann lítur út fyrir að vera.
Og já...... ég er nánast bara búin að elda fisk alla þessa viku. En um helgina fáum við góða gesti og þá ætlar Þráinn að elda og dekra okkur nokkrar vinkonur saman. Það verður geggjað því hann kann sko alveg að elda þó hann deili því ekki.

