Já ég er með hárið tekið upp með spennnu.
Já, það situr eitthvað undarlega.

Ég sé það alveg sjálf.

Ég skil vel að þér finnist ég vera svolítið einkennileg.

Það skil ég mjög vel!

Þú ert jú ung!

Ég get alveg tekið spennuna úr.

Svona! Er þetta betra núna, finnst þér?

Ekki?

Ég er heldur ekki með neinn farða á mér.
Ég er ekki einu sinni með maskara.

Þó ég hefði kannski litið aðeins ferskari út með smá meik og maskarann.

Ég skil þig alveg þegar þú hugsar:
„Hún hefði nú að minnsta kosti getað sett smá foundation.“

Já, það hefði örugglega litið betur út.

En veistu hvað?

Það er bara ekki svo mikilvægt fyrir mig að líta betur út.

Mér finnst bara alveg í lagi að líta út eins og ég lít út.

Þú skilur?

Ég er með svona "afslappaðan" stíl.

Það er meira að segja til sérstakt orð yfir hann:

"Afslappaður".

Þú ert ung, sæt og fersk.

Þannig á það líka að vera!

Ég geng líka svolítið skringilega.

Það er mjöðmin.

Hún hefur verið með mér í gegnum ýmislegt og er farin að hafa sínar eigin skoðanir á því hvernig ég eigi að ganga.

Ég hef gengið langt. Og mikið.

Og já, ég veit alveg að ég lít stundum svolítið crazy út.

En ég hef ekki miklar áhyggjur af því, hvort þér finnst það.

Ég geng bara um eins og ég geng.

Þú gengur kannski aðeins meira sexy.

Það er bara allt í lagi.

Þú átt að vera ung og aðlaðandi.

Ég er búin að vera þar.

Þessar hrukkur þarna?

Já, ég gæti örugglega gert eitthvað við þær.

Hvað heitir það aftur?

Filler?

Nei takk.

Ég nenni því ekki.

Þessar hrukkur trufla mig ekkert sérstaklega.

Reyndar horfi ég ekki einu sinni svo oft í spegil.

Stundum uppgötva ég það á kvöldin að ég hef ekki litið í spegil allan daginn.

Þá strýk ég bara hendinni yfir hárið og segi:

„Jæja.“

Og held áfram.

Já, ég er gömul í þínum augum.

En eiginlega ekki í mínum.

Ég er ennþá sama ég.

Ég hef bara orðið eitthvað meira með árunum.

Eitthvað í viðbót.

Ég hef lifað aðeins lengur.

Upplifað aðeins meira.

Lært ýmislegt.

Og gleymt ótrúlega miklu af því aftur.

En ég er bara ég.

Og mér líður bara alveg ágætlega með það.

Skilurðu?

Þú yndislega, unga og dásamlega manneskja.

En það er eitt sem skilur okkur mjög greinilega að:

Ég hef verið þar sem þú ert.

Þú getur ekki sagt það sama um mig.

Ekki ennþá.

💕

Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan


ps. texta stolið af netinu og stílfærður að mér og mínu.