BLOG
63 ára og hvað með það!
Já ég er með hárið tekið upp með spennnu. Já, það situr eitthvað undarlega. Ég sé það alveg sjálf. Ég skil vel að þér finnist ég vera svolítið einkennileg. Það skil ég mjög vel! Þú ert jú ung! Ég get alveg tekið spennuna úr. Svona! Er þetta betra núna, finnst þér? Ekki? Ég er heldur ekki með neinn farða á mér. Ég er ekki einu sinni með maskara. Þó ég hefði kannski litið aðeins ferskari út með smá meik og maskarann. Ég skil þig alveg þegar þú hugsar: „Hún hefði nú að minnsta kosti getað sett smá foundation.“ Já, það hefði örugglega litið betur út. En veistu hvað? Það er bara ekki svo mikilvægt fyrir mig að líta betur út. Mér finnst bara alveg í lagi að líta út eins og ég lít út. Þú skilur? Ég er með svona "afslappaðan" stíl. Það er meira að segja til sérstakt orð yfir hann: "Afslappaður". Þú ert ung, sæt og fersk. Þannig á það líka að vera! Ég geng líka svolítið skringilega. Það er mjöðmin. Hún hefur verið með mér í gegnum ýmislegt og er farin að hafa sínar eigin skoðanir á því hvernig
28 September 2026
Myrkfælni
Þegar ég var lítil var ég myrkfælin. Ég man ekkert sérstaklega eftir því sem smábarn, en strax eftir tíu ára aldur man ég mjög vel að ég gat aldrei sofið í herbergi þar sem ekkert ljós var kveikt. Það þurfti ekki endilega að vera flóðlýsing, ég var ekki að reyna að halda uppi flugvellinum í Vestmannaeyjum, en það varð að vera einhver ljóstýra. Bara svo ég vissi hvar ég væri stödd ef eitthvað skyldi nú gerast. Og ef ég þurfti að labba heim að kvöldi til í myrkri, þá söng ég alltaf hástöfum. Ekki bara smá raulaði með sjálfri mér, nei nei. Ég söng. Hástöfum. Ástæðan var auðvitað alveg rökrétt í mínum barnshuga. Fólkið í húsunum í kring varð að vita að þarna væri lítil stelpa að labba heim. Og ef hún skyldi allt í einu hætta að syngja, þá myndi fólk vonandi átta sig á því að eitthvað hefði komið fyrir hana. Algjörlega vatnsþétt öryggiskerfi, ekki satt? Ég sé þetta alveg fyrir mér núna. Lítil, grönn, ljóshærð stelpa í grænum buxum á gangi eftir dimmri götu og syngjandi af öllum lífs og sála
4 September 2026
Bátaárið sem varð eiginlega ekki bátaár
Það er búið að vera rosalega skrítið veður í sumar. Mikil sól, mikill hiti og stundum alveg hreint yndislegt… en svo hefur nánast alltaf verið rok! Við erum því bara búin að fara þrisvar út á bátnum í allt sumar og nú er sumarið eiginlega að verða búið. En svona er þetta bara. Við ráðum ekki við veðrið, þótt maður myndi stundum alveg vilja fá að hringja eitthvert og kvarta. Árið 2026 var greinilega ekki mikið bátaár hjá okkur. En í staðinn hefur verið mikið baðað í ánni, þannig að það er alltaf eitthvað sem er minna af og eitthvað annað sem kemur í staðinn. Maður verður bara að nýta það sem maður fær – hvort sem það eru bátsferðir eða sundsprettir í ánni. Ég skrapp inn í Mandal í búðir í síðustu viku og ákvað þá að kíkja niður á Bravo. Skalldyrfestivalen hafði verið helgina á undan og mér fannst alveg eins gott að athuga hvort ekki væri allt í lagi með bátinn. Sem það var auðvitað. Þarna lá hann bara, alveg saklaus og fínn, eins og hann hefði ekkert með það að gera að veðrið hefði veri
24 August 2026
Ég beið eftir myrkrinu – en það kom aldrei
Ég held að ég verði bara að viðurkenna það strax: ég botnaði eiginlega ekkert í þessu. 😂 Ég hafði hlakkað til sólmyrkvans 12. ágúst. Ég var búin að ná í gömul sólmyrkvagleraugu, taka símann með mér og meira að segja prófaði ég að halda polariseringsfilter fyrir framan linsuna á símanum. Ég var svo tilbúin. Og svo kom sólmyrkvinn. En... sólin skein og það var alveg bjart, ekki svona „smá bjart“. Nei nei. Bara flennibjart. 🌞 Ég sem var búin að vera að bíða eftir þessu mikla myrkri sem ég hafði heyrt um og séð á myndum frá Íslandi og hugsaði eiginlega: Hvað er eiginlega í gangi? Á þetta ekki að verða svart? Ég tók myndir og myndir og myndir. Á einni þeirra sést meira að segja gamla brúin í kvöldsólinni. Hún var tekin einmitt þegar hámark sólmyrkvans átti að vera. Og þarna stend ég og horfi í kringum mig og hugsa: „Er þetta hámarkið?“ Já. Þetta var hámarkið. 😂 Það sem ég fattaði ekki var að ég var á allt öðrum stað í sólmyrkvanum en fólkið á Íslandi. Hér á Lindesnes var víst bara um 87%
13 August 2026
Þegar kona heldur að hún sé smá lasin...
Sumir dagar byrja á þann hátt að maður er alveg viss um að það verði ekkert úr þeim. Ég vaknaði þennan morgun óvenju þreytt og með einhverja óskiljanlega verki. Ég skellti mér samt í vinnuna, kom heim, fékk mér að borða og lagði mig – eins og ég geri oft þessa dagana. Þegar ég vaknaði aftur leið mér ekkert sérstaklega betur. Ég hugsaði með mér: "Ég er örugglega bara að verða eitthvað lasin." Og þar sem það var ekkert sérstakt á dagskrá ákvað ég að leyfa mér bara að vera í leti. Við höfðum verið með gesti í nokkra daga og stundum þarf maður einfaldlega að gefa sér leyfi til að gera ekki neitt. Það var allavega planið... Bara aðeins að kíkja á nokkrar myndir... Ég fór samt aðeins niður í vinnuherbergið. Ég ætlaði bara að skoða nokkrar myndir sem ég hafði verið að taka síðustu vikurnar. En eins og svo oft áður varð "bara aðeins" að einhverju allt öðru. Allt í einu var ég farin að velja myndir fyrir In Stillness, myndaflokkinn minn á Mirra.no. Auðvitað kallaði ég á Gurrí. Við fórum yfir my
5 August 2026
Bortelid með vinum!
Við Þráinn, María og Stefán skelltum okkur saman í sumarbústað í Bortelid í vikunni og áttum þar nokkra alveg dásamlega daga. Það var eiginlega ekki fyrr en núna sem við áttuðum okkur á því hvað það er langt síðan við höfum verið svona lengi saman – meira en bara í stuttri heimsókn eða eina nótt. Það gerði ferðina enn skemmtilegri. Við dekruðum heldur betur við okkur í mat. Á matseðlinum voru meðal annars elgsteik, nautasteik og svínakjöt með alls konar girnilegu meðlæti. Það er nefnilega eitthvað sérstakt við góðan mat, góðan félagsskap og að hafa nægan tíma til að sitja lengi við borðið, spjalla, hlæja og bara njóta augnabliksins. Við fórum líka í nokkra göngutúra og það er alveg á hreinu að ég fæ viðurkenninguna fyrir að vera besti fararstjóri ever... eða kannski ekki alveg! Það var að minnsta kosti enginn sem týndist, þannig að ég tel það vera sigur. Síðan var keppt í alls konar leikjum þar sem ég brilleraði með spegilgleraugunum... eða öllu heldur ekki. Við spiluðum Hitster og sun
23 July 2026
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK