Já þau eru það svo sannarlega mikilvæg áhugamálin okkar. Þau geta verið alls konar, frá því að fara í bíó, smíða, skera út í við, gera upp gamla bíla, prjóna, hekla, lesa bækur, myndlist, ljóðlist, ljósmyndun og ég veit ekki hvað og hvað. Já áhugamálin geta verið hvað sem þér finnst skemmtilegt að gera. En það er mjög mikilvægt að eiga áhugamál og hlakka til að vinna við þau oft og jafnvel hvern einasta dag. Sérstaklega þegar við eldumst og höfum ekki lengur um börnin okkar að hugsa og / eða aldraða foreldra. Núna stöndum við Þráinn á þeim tímamótum að vera farin að sjá fram til þess tíma sem við hættum að vinna, árin eru færri en 5 svo þá er tímabært að efla og bæta við áhugamálin sín, svo ekki komi leiði að okkur. En okkar staða er góð þar sem okkur hlakkar svo til að geta haft alla morgna eins og laugardagsmorgnana, vakna snemma, fá sér kaffi, spjalla um lífið og tilveruna, hlusta á músík, kveikja upp og fara svo að sinna áhugamálunum sínum. Þetta er til dæmis eitt af mínum!
En ég á fleiri td. ljósmyndunina. En ég fór í algera deyfð þar núna síðustu mánuði, uppgötvaði núna nýlega að reyndar virðist það hafa komið í kjölfar þess að Erro kvaddi okkur, en hann var mér dyggur stuðningsmaður í ljósmynduninni því við sameinuðum áhuga hans á göngutúrum og ljósmyndunina mína. Og það sem ljósmyndunin gefur mér er ekki bara að taka myndir, því ég þarf að fara út og labba til þess. Já ég er innipúki ef ekki er sól og 20 stiga hiti en samt alltaf að verða meira meira opin fyrir útivist en líkega ekki eins og aðrir kalla útivist. Ég fær líka útrás með ljósmyndaáhuganum fyrir tölvuvinnu eða myndvinnsluna sem mér finnst ekki minna skemmtileg og að taka myndirnar og ég elska að setja myndirnar í þann búning sem ég upplifði þær þegar ég tók þær, því augað sér og heilinn vinnur úr hlutunum á mismunandi hátt, að sama skapi er mynd ekki bara mynd, hún er upplifun.
Svo bættist eitt enn áhugamál við í vetur og það er að vinna plaköt uppúr ljósmyndunum mínum með aðstoð gervigreindarinnar. Og það sem það er gaman að sjá myndirnar mína umbreytast í plakat með húmor eða ekki. Ég hef nefnilega aldrei getað málað eins og hún systir mín, en alltaf öfundað hana af því og þarna er ég kannski búin að finna eitthvað sem ég get skapað án þess að halda á penslinum sjálf. Ég á eftir að gera fleiri plaköt því "Guð minn góður" ég á nóg af ljósmyndum til að vinna úr, og ef ég er ánægð með plakötin þá fara þau í sölu á heimasíðunni minni, því það er líka gaman að geta leyft öðrum að njóta listarinnar heima hjá sér upp á vegg. Ég ákvað að taka smá pásu frá plakatvinnslunni minni núna þar sem ég vann svo rosalega mikið í haust við að búa þau til, gera heimasíðuna og útbúa hana þannig að hægt væri að kaupa plakötin þarna í gegn. Já ég geri alltaf allt sjálf í þessum efnum og finn bara út úr hlutunum ef ég kann þá ekki, og það er svo skemmtilegt. Sakna þess samt oft að hafa ekki alla snillingana hjá Wise ennþá til að spyrja og læra af, en þannig er þetta bara.
Ég datt síðan niður á eitt áhugamál í viðbót í sumar þegar ég var á goslokahátínni í Eyjum og það er að mála mandölur á litla tréplatta svo úr verði glasabakkar. Hrikalega skemmtilegt og minnti mig á hvað mér fannst alltaf gaman að lita í litabækur þegar ég var lítil. Og ekkert svo lítil því ég sem unglingur átti geggjaða litabók með myndum af Sterkasta banga í heimi, minnir mig hann hafi verið kallaður, var alltaf í bláum smekkbuxum og með hatt. Ég átti líka risastóran litakassa sem Klara systir horfði á með öfund því þarna er hún komin á þann aldur að vera að lita og stóra systir átti flottustu litabókina og flottasta litakassann. En nú eiga allir sem ég þekki glasabakka og sumir meira en eitt sett svo eitthvað verður kona að hugsa þetta víðar og keypti mér á Temu (já ég versla þar ennþá með góðri samvisku) pappír í stærðinni 15x15cm sem gott er að nota til að mála á, með acryl litum og prentaði á þær mandölur og var að byrja að lita þær, en alltaf að hugsa .... en í hvað nýtist þetta? Já, skrítið ég get ekki bara málað og svo setja ofaní skúffu, það meikar engan sens, þess vegna er kannski svona gaman að mála glasabakkana því þá get ég gefið þá út um allt. Og það er lílega þess vegna sem mig langar ekki í litabók með mandala myndum, því hver er tilgangurinn að setja hana bara svo ofaní skúffu. Jæja ég er eitthvað að velta þessu fyrir mér annað slagið og er svo að breyta í eldhúsinu hjá mér og tek niður ljósaseríu sem er búin að hanga lengi á hvítum lista sem er undir efriskápunum en löngu orðin ónýt og þá finnst mér þessi listi allt í einu vera svo tómlegur og hvítur og ...... þá dettur mér í hug! Vá, hvað er listinn hár, hvað er hann langur, hann er 6 sm á hæð. Lengdin er 48 x6cm. Og þá fékk ég þessa hugmynd að prenta út 4 mandölur á hvert 15cm blað og mála þær. Þetta er örsmátt og kemur mér á óvart að ég hreinlega geti svona fínhreyfingar en jú ég er alla vega byrjuð, búin að gera allar mandölurnar fann 24 munstur sem eru ekki of smá þannig að hægt sé að minnka þær niður í 6 sm. og mála þær. Já já þá er bara spurningin, hvað skyldi þetta taka langan tíma hjá frúnni á Nesan? Og hverju tekur hún uppá næst? Einhverjar hugmyndir?
Best er að hlusta á góða hljóðbók þegar verið er að mála svona og það þarf að vera rosalega gott ljós, þess vegna keypti ég mér svona eitt sem hægt er að hafa um hálsinn og beina fram eða niður eða hvert sem þú vilt, nýtist líka við lestur bóka sem ég hef ekki getað notið vegna sjónleysis og það er ekki nógu bjart allan ársins hring. En nú er konan komin með linsur og ljós og búin að lesa eina bók síðan um áramótin og það var sko góð bók, eftir hana Evu Björgu og heitir "Allar litlu lygarnar".
Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.
Ps. myndirnar gerðum við Gurrí saman og á þetta að vera ég í þessum ýmsu áhugamálum en hérna fyrir neðan eru mínar myndir af þessum mandöluverkum mínum sem ég hef ekki ennþá gefið eða sett uppá vegg.




