Ég er að verða svo mikill bakari, ég sem hef aldrei bakað gott brauð, baka æðislegt brauð í dag og það súrdeigsbrauð. Hver hefði trúað því að ég myndi nenna einhverju svona veseni? Alla vega hefði ég sagt "Ekki ég" fyrir nokkrum árum en í kjölfar þess að ég uppgötva að ég sé með gluten óþol og ég sem elska brauð og það helst hvítt og ristað þá datt mér í hug að prófa þetta og ég held áfram að prófa og prófa og er komin á þann stað að ég er að fara að prófa að baka súrdeigs spelt pizzabotna á morgun. Það verður spennandi að sjá og smakka og svo vita hvernig ég verð í liðunum og bakflæðinu eftir það. Ég finn nánast ekki neitt fyrir þessu af venjulegu súrdeigs- speltbrauði en ég passa mig samt líka á að borða ekki of mikið af því.

En í ljósi þess að konan er að verða bakari og nýbúin að breyta eldhúsinu þannig að borðplássið varð að engu þá vantaði pláss og nú er komið bakarahorn í eldhúsið mitt og hvað vantar þá?

Já það vantar eitthvað töff plakat þarna fyrir ofan, færa myndina af Mirrunni og setja eitthvað töff plakat. Humm bakaraplakat, hugsaði ég og mundi þá að ég hafði tekið myndir af Maddý með hrærivélina svo ég fór að leita og hugsa upp hvernig ég vildi að myndi væri og þá datt mér í hug í Pillsbury's BEST hveiti og litir og áferð og þess háttar og þetta er útkoman hjá mér og Gurrí vinkonu minni.

Er hún ekki geggjuð? Ég elska hana og hún fer uppá vegg fyrir ofan hrærivélina mína strax eftir jól. Svo núna eru komin 3 ný plaköt gerð eftir ljósmyndum af Maddý tengdó. Oh ég man þetta var svo skemmtileg myndataka og sú er að borga sig núna mörgum árum seinna og eftir að elsku Maddý dó.

Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.

Ps. ég bjó líka til aspassúpu meðnýbökuðu snittubrauði í gær og nammi namm það var sko gott. Set inn uppskrift af henni fljótlega.