Við Þráinn, María og Stefán skelltum okkur saman í sumarbústað í Bortelid í vikunni og áttum þar nokkra alveg dásamlega daga. Það var eiginlega ekki fyrr en núna sem við áttuðum okkur á því hvað það er langt síðan við höfum verið svona lengi saman – meira en bara í stuttri heimsókn eða eina nótt. Það gerði ferðina enn skemmtilegri.
Við dekruðum heldur betur við okkur í mat. Á matseðlinum voru meðal annars elgsteik, nautasteik og svínakjöt með alls konar girnilegu meðlæti. Það er nefnilega eitthvað sérstakt við góðan mat, góðan félagsskap og að hafa nægan tíma til að sitja lengi við borðið, spjalla, hlæja og bara njóta augnabliksins.
Við fórum líka í nokkra göngutúra og það er alveg á hreinu að ég fæ viðurkenninguna fyrir að vera besti fararstjóri ever... eða kannski ekki alveg! Það var að minnsta kosti enginn sem týndist, þannig að ég tel það vera sigur. Síðan var keppt í alls konar leikjum þar sem ég brilleraði með spegilgleraugunum... eða öllu heldur ekki. Við spiluðum Hitster og sungum hástöfum með ótrúlega mörgum lögum. Það kom mér reyndar skemmtilega á óvart hvað Stefán kunni mikið af þessum eldgömlu lögum sem ég ólst upp við. Keppnin varð því hörð, þó stundum hafi maður óvart hjálpað andstæðingnum – enda var skemmtunin alltaf mikilvægari en stigin.
Núna eru allir komnir heim til sín. Fríið hjá Þráni er að verða búið og það fór að mestu í að hvíla sig eftir annasamt vor og upphaf sumars. Ég á hins vegar eina viku eftir og stefni á að skella mér til Stavanger. Svo langar mig líka að klára að bera á pallinn, þannig að við sjáum hvernig það púslast allt saman.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá Bortelid. Ég verð að viðurkenna að mér finnst þessi staður miklu fallegri og skemmtilegri á sumrin en á veturna. Þá er allt á kafi í snjó og fólk kemur fyrst og fremst til að fara á skíði – sem hefur aldrei verið mín sterkasta hlið. Á sumrin fær maður hins vegar að njóta fjallanna, vatnanna og kyrrðarinnar á allt annan hátt.
Og svo eitt sem ég tók eftir þegar ég skoðaði myndirnar: Ég er eiginlega alltaf aftast í hópnum og á nær helmingi myndanna eru þau hin þrjú í forgrunni en ég einhvers staðar langt fyrir aftan. Sem er kannski bara ágætt... því þá er líka minni hætta á að þið sjáið allt of margar myndir af afturendanum á mér! 😂
„Stundum þarf maður ekkert stórkostlegt ævintýri. Bara góða vini, góðan mat, fullt af hlátri og nokkra daga þar sem klukkan skiptir engu máli.“
Njótið myndanna – og eigið yndislegt sumar!
Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna





























