Skruppum til Önnu Fanneyjar og Eddu um síðustu helgi, fengum geggjað veður á laugardeginum en hinir dagarnir voru hvort eð er ferðadagar svo veðrið skipti minna máli þá. Kíktum aðeins í kringum okkur og urðum dolfallin af dönskum kirkjugörðum, þvílík fegurð og vel snyrt. Greinilegt að það er starfsfólk garðanna sem sér um að snyrta leiðin líka, ekki bara garðinn, því það finnst ekki eitt einasta illa snyrt leiði. Skoðuðum líka eina litla sæta myllu.
Látum myndirnar bara tala sínu máli.
Takk fyrir okkur elsku mæðgur. Hlakka til að sjá ykkur í haust.
Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.















