Mig langar svo að sýna ykkur hvernig ljósmynd verður að plakati uppá vegg hjá þér til dæmis, með því að sýna ykkur ljósmyndirnar mínar sem eru fyrirmyndirnar að plakötunum sem ég er búin að vera að gera og er að selja. Þetta hefur verið algjör berg- og dalbane eins og Norðmenn segja að búa þetta til en mest bara ótrúleg gleði og þvílík nostralgía að vera að rifja upp þessar gömlu vörur sem voru til þegar ég var lítil.

Byrjum á Sinalco og Spur cola stelpunum. Þau plaköt eru unnin upp úr sömu ljósmyndinni, með fyrirmælum frá mér til Gurríar (Chat GPT) um hvernig hún eigi að breyta, laga, bæta og vinna. Þetta gerist ekkert sjálfkrafa, því ég er með ákveðnar hugmyndir sem ég óska eftir.

Hérna sjáið þið frummyndina.

Og hérna er svo Spur cola myndin þar sem augljóslega má sjá hvaða mynd er fyrirmyndin fyrir utan að stúlkan var gerð eldri þar sem mér finnst ekki börn eiga að auglýsa vörur og því ekki heldur þá á plakötum frá mér.

Sinalco myndin er komin talsvert lengra frá upphaflegu myndinni en ég sé samt að þetta er hún Ástrós Mirra mín, þó hún sé orðin ljóshærð og teiknuð.

Næsta sería sem ég gerði var kaffi plakötin, þar sem ég fór í nostralgíu með kaffið frá í gamla daga.

Hérna sjáiði frummyndirnar.

Og hérna koma svo kaffi plakötin mín.

Vonandi finnst ykkur gaman og fróðlegt að sjá hvernig þetta verður til hjá mér, og kannski það verði til þess að þið kaupið ykkur plakat, sérstaklega þið sem eruð skeptiskt til AI og sjáið að þetta eru samt mín verk að öllu leyti. Málið er nefnilega að þó þetta sé ofboðslega gaman, þá liggur að baki mikil vinna og hún heldur áfram í formi auglýsinga og alls konar, svo það skiptir náttúrulega máli að selja, en það er það erfiðasta sem listamenn gera því sjaldnast eru þeir sölumenn líka. Og það er erfitt að segja við einhvern "Sjáðu hvað ég er að gera flotta hluti" en ég er búin að ákveða það núna, að þetta er akkúrat það sem ég ætla að segja því ég er svo rosalega stolt af þessum verkum mínum og myndi sjálf vilja hafa þau öll uppá vegg en ætla að láta mér nægja eitt, og er enn að velja. Hvaða plakat finnst ykkur að ég ætti að velja?

Jæja næst eru það Ajax og spákonan en ég var nú búin að sýna ykkur myndaseríuna sem kveikti á þeim en hérna sjáið þið akkúrat þær tvær myndir sem eru frummyndirnar að þessum plakötum, og já hér er fyrirsæta hún Maddý heitin tengdó, sem var dásamleg fyrirsæta.

Hvað finnst ykkur og hvernig finnst ykkur okkur Gurrí hafa tekist til hérna? Svo meðan ég sit og er að vinna þessar myndir, þá verður mér litið á handlegginn á henni Maddý minni og sé að hún er með armbandið sem ég fékk eftir hennar dag og hef alltaf á mér þessa dagana. Svo við erum tengdar saman með gulli og silfri.

Eins og ég sagði hérna fyrir ofan þá er vinnan sko alls ekki búin þegar búið er að gera plakatið, því þá þarf að setja það inná heimasíðu, það þarf að setja það inná kortasíðu eða paypal, það þarf að tengja þetta allt við síðu hjá aðilanum sem prentar þetta út og sendir til ykkar þegar þið pantið, það þarf að búa til vörunúmer, það þarf að búa til Mockup myndir sem eru myndirnar sem sýna hvernig plakötin líta út upp á vegg og þá þarf að passa uppá að vera með forrit sem sýnir myndirnar í réttum stærðum, svo kúnninn fái ekki ranghugmyndir og að lokum þarf að gera auglýsingar fyrir Social Media og leggja allt út þar, til að ná til ykkar.

En eins og Maddý spáði fyrir, þá er framtíðin björt, ég er hamingjusöm og ánægð með mig og mitt, Þráinn er þvílíkt stoltur af mér eins og hann er reyndar alltaf, svo nú er bara að njóta fram að jólum og eftir jólin koma kannski einhver ný plaköt, nýjar hugmyndir og gaman, gaman.

Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.