Við hjónin skelltum okkur í Kanaríferð með Önnu Svölu og Anders vinum okkar, ásamt mömmu Önnu, henni Hönnu Birnu og Ellu vinkonu hennar. Anders varð fimmtugur nýlega og er hann unglingurinn í hópnum, sú elsta 82, þannig að það fór lítið fyrir kappaksturleikjum eða sjóleikjum eins og við gerðum fyrir 22 árum þegar við vorum síðast á Kanarí, enda bauð veðrið ekki upp á það. Þó var búið að panta fyrirfram einhverja geggjaða bátsferð, með stoppi einhvers staðar og þar átti að vera hægt að fá að kafa og svo átti að borða paella um borð og hafa það huggulegt og kósí en öllum svona ferðum var aflýst vegna veðurs. Svo við gerðum nú bara það besta úr því sem við höfðum, lágum í sólbaði í 40 mín og hlupum svo inn eða reyndum að sitja úti undir sólhlífinni. Skúrirnir voru svakalegir og í eitt skiptið hélt ég hreinlega að flugvél hefði lent á húsinu þegar himnarnir opnuðust og það var skellt á okkur 20mm regni á 3 mín. En ég tók samt nokkrar myndir en þær voru oftast undir hlíf eða á hlaupum til að forða sér úr bleytunni.

Dagur 1

Ferðadagur, við komum deginum áður til Anders í Stavanger (Anna, Hanna og Ella voru komnar til Kanarí í vikunni á undan okkur) vöknuðum kl. 3 um nóttina til að koma okkur í fyrsta flugið, vorum síðan lent og komin í hús um kl. 3 um daginn. Og enn og aftur sannast það að leiðinlega við ferðalögin eru ferðalögin. Það sem ég hata flugvelli og allt varðandi flug, úff. En þetta tókst að millilenda í Frankfurt og koma okkur í næstu vél osvfr.

Við á leiðinni til Stavanger

Og mætt heim til Anders

Þá er það fyrsta flug, en þau urðu 4 og þetta er eina flugvélamyndin, svo njótið bara.

Svona leit íbúðin okkar út, bara fín í fyrstu en svo uppgötvuðum við að sturturnar voru ömurlegar og sjaldan sem allir fengu vatn og vorum við Anna með sápu í hárinu allan tímann enda munið þið sjá allskonar útgáfur af "Bad hairday" á öllum myndum af okkur.

Gengið á leiðinni uppí Yumbo senter að fara að fá sér fyrstu kvöldmáltíðina, enn er ekki byrjað að rigna.

Hérna erum við Þráinn og Ella saman.

Og hér eru Anna, Anders og Hanna.


Þetta kvöld borðuðum við á hinum svokallaða Klörubar þar sem allir elska íslendinga, þó að Klara sé löngu látin, en ekki get ég hrósað matnum, þar pantaði ég mér lambakótilettur og þær voru hálfsoðnar og bragðlausar. Mæli með til að hittast og kósa sig en maturinn ekki góður, það vorum við öll sammála um. Enda rifjaðist upp þegar ég sá matseðilinn það sem Gordon Ramsy sagði alltaf að ef matseðill er of stór þá er enginn réttur góður.

Á leiðinni heim fundum við Anders draumabílana okkar.

Ég fann samt annan seinna sem var enn flottari og sagði þessum gula upp, sá var appelsínugulur og dásamlega fallegur, en enginn virðist hafa tekið mynd af mér að knúsa hann, en ef hún finnst þá bæti ég henni við.

Dagur 2

Hann byrjaði bara með sól og blíðu og hélt því allan daginn, svo við fórum í sólbað, og héngum heima í garðinum þangað til förinni var heitið á Harrýs til að taka þátt í íslenskum fjöldasöng. Þetta var dásamlegt kvöld, með sól og söng og hittum við nokkra eyjamenn sem við höfum ekki séð lengi. Mikið fjör og mikið gaman.

Dagur 3

Við byrjuðum á að labba niðrá strönd og kíkja á mannlífið en það voru ekki margir á ströndinni sjálfri en þó nokkuð af fólki á röltinu, enda rok en þó engin rigning akkúrat þarna og hitinn bara, já ég sagði bara 19 gráður. Ég keypti mér reyndar pils sem hefði verið notað meira þarna úti en verður sko notað á kosta del Nesan í sumar, en gallinn við pilsið er að það eru buxur og enginn sá það meðan ég var að skoða það og máta við mig, ha ha ha.

Svo um kvöldið var búið að bóka okkur á hátíð íslendingafélagsins þarna þar sem var matur og vín og átti að vera fjöldasöngur en hann féll niður en það var dansað þarna fram eftir kvöldi. Og ekki eitt íslenskt lag spilað, skrítið íslendingakvöld. Það var sussað á okkur eins og við værum smábörn og urðu smá leiðindi í nokkrar mínútur út af því en það var bara sjatlað og málin rædd og allir sáttir nema stjórn íslendingafélagsins þurfi að skrifa um það daginn eftir að þau voru ánægð með að það var sussað okkur, málið er að þau voru víst að reyna að tala við yfir 100 íslendinga með svo lélegt hljóðkerfi að við vorum ekki búin að taka eftir því og ef einhver hefði bara sagt okkur að það væri verið að reyna að halda ræðu og BIÐJA okkur um hljóð, þá hefðum við að sjálfsögðu gert það, en sumir þurfa bara að vera dónalegir og kannski var þetta af því að við erum ekki í félaginu en það var öllum frjálst að kaupa miða. En þetta var hið fínasta kvöld eftir að allir ræddu saman.

Svo var haldin grettukeppni á milli Kanarí og Tenerife, þið verðið að dæma hver vann!

Og dansað fram eftir kvöldi.

Dagur 4

Þennan dag var setið í tveimur peysum úti, bara til að sitja úti og svo var spilað Pool og Dart. Fengum þá almestu rigningu sem við höfum upplifað, ég hélt að flugvél hefði keyrt á húsið, smellurinn var svo svakalegur, ég veit ekki hvort mér tókst að fanga eitthvað af þessari upplifun í þessum vídeóum sem hér fylgja en það tók nokkrar sekúndur að fatta að þetta væri videó efni, ha ha ha.

Dagur 5

Gekk á með skúrum og roki en sól á milli, dunduðum okkur heima og fórum svo út að borða og skemmtum okkur saman.

Dagur 6

Þessi dagur var svipaður og sá á undan, með einni undantekningu að við skelltum okkur út að borða á kínverskan veitingarstað sem hefur þá bestu pekingönd sem ég hef smakkað, við fórum þarna fyrir 22 árum og staðurinn er alveg eins og öndin alveg jafngóð. Lentum í svo mikilli rigningu á leiðinni heim að það tók 2 daga að þurrka fötin okkar. Vorum blaut innað beini. Þarna sækja mikið íslendingar og meðan við sátum að borða heyrum við sungið hástöfum, það er allt á floti alls staðar og við gátum ekki annað en tekið undir með þeim, enda var það svoleiðis.

Dagur 7

Við Þráinn ákváðum að labba niður á stönd uppúr hádegi þrátt fyrir að vita að það kæmu skúrir því nú vorum við að fara heim daginn eftir og allt of lítið búið að komast út úr húsi vegna slæms veðurs. Við lögðum af stað í sól og það er svona 15 til 20 mín gangur niður á ströndina og á miðri leið, kom þetta líka úrhellið og við urðum gegndrepa á nokkrum mínútum. Vorum ein að labba niðureftir, allir á uppleið í rigningunni, við fundum engan bar eða veitingarstað á leiðinni til að fara inn og skýla okkur svo þegar niður á strönd kom varð að velja sér stað að setjast á sem hafði útipláss svo við myndum þorna.

Svo þegar við vorum orðin þokkalega þurr, þá skelltum við hjónin okkur í spa, aðeins öðruvísi en maður á að venjast og pínu skrítið og kitlandi en gaman að prófa.

Röltum aðeins um ströndina og svæðið og náðum að njóta smá sólar aftur, fengum annan skúr og komum okkur inn á einhvern stað og drukkum sitthvorn bjórinn, skelltum okkur svo aftur út og ætluðum bara heim þegar við rákumst á músík og sáum að eitthvað fjör væri í vændum.

Ákváðum að hringja í Önnu og Anders og þau og Ella komu gangandi til okkar til að njóta síðasta dagsins úti, svo komu Biggi og Dóra seinna og hittu okkur, það var voða gaman. Sátum og spjölluðum og nutum skringilegrar tónlistar og auðvitað kom enn einn skúrinn og ég hljóp í skjól en fékk þá flóðið af sólhlífinni yfir mig svo .......

Enduðum á veitingarstað þar sem ég og Anna keyptum okkur pasta með humri en úps, ég var að hugsa um íslenska humarhala en ekki þetta vesen. Ha ha ha!

Góður endir á annars skrítinni kanarí ferð (vegna veðurs) og hér er hópurinn sem hélt mest saman alla ferðina.

Ferðadagurinn var ekki myndaður enda ekkert skemmtilegt við flugvelli eða flugvélar eins og ég hef sagt áður, vildi helst geta ferðast allt með lest. Fengum meira að segja ekkert að borða og ekki hægt að panta mat í seinni vélinni og lentum rétt fyrir miðnætti í kulda og rigningu í Stavanger, glorsoltin og þreytt, fundum á endanum bílinn okkar, villtumst á leiðinni út á E39 þar sem göngin sem vanalega er keyrt í gegnum voru að sjálfsögðu lokuð þessa nótt en enduðum á finna rétta leið eftir smá pirring (enda glorsoltin og þreytt) og vesen með Google maps. Keyrðum í klukkutíma áður en við fundum sjoppu sem var opin 24/7.

Við lögðum af stað frá húsinu okkar á Kanarí kl. 11 um morguninn, vorum komin heim kl. 3 um nóttina, þetta er of langt ferðalag, ég þurfti í vinnu kl. 8 um morguninn og var ónýt allan daginn. En svo kom vorið á Nesan svo Kristín Jóna vorkona er hamingjusöm með ferðina og lífið í dag.

Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna ( en verður líklega aldrei kanarí aftur eða hvað)