Já það var verið að spyrja mig um daginn, hvort ég væri hætt að blogga en það er ég svo sannarlega ekki en það virðist vera þannig að ég blogga meira á veturna enda sit ég meira við tölvuna þá en á sumrin og akkúrat núna undanfarnar vikur hef ég bara haft nóg að gera. Fyrst var að undirbúa og halda afmæli aldarinnar fyrir Þráin (sjá eldra blogg) og strax eftir það skrapp ég til Osló til að sækja Steinu tengdó sem verður hjá okkur í tæpan mánuð. Og það er nú þannig að þegar það er alltaf félagsskapur þá er minni þörf að tjá sig online.
En við erum bara líka svo mikið að njóta góða veðursins sem við erum búin að hafa þó það hafi líka komið nokkrir kaldir dagar og rigningadagar innanum þá finnst mér vorið hérna hafa verið mjög gott og byrjun sumarsins fín en ótrúlega skrítið hvað það er kalt þegar ekki skín sól og vindurinn í sólinni er ískaldur. En mjög gott veður samt. Ég er ekki að kvarta. En nú bíð ég bara spennt eftir því að fara til Íslands þann 26. júní og ég ætla að stoppa í 10 daga. Njóta þess að vera á Gjábakka með Konný systur, fá gesti þangað og svo að hitta þessi 3 nýju kríli í fjölskyldunni sem ég hef ekki hitt og auðvitað alla þá eldri líka. Síðan ætla ég á Goslokahátíðina og njóta alls sem verður í boði þar. Konný stýrir nú dáldið mikið ferðinni þar enda alvön þessari hátíð og veit um allar listasýningarnar sem eru í boði og svo ætlum við jú á Todmobil tónleikana en það eru rúm 30 ár síðan ég sá þau síðast á sviði og það var líka í Eyjum. Svo þetta verður legendary!
Ég las ansi góðan FB status í gær um núvitund og var sú góða kona að vitna í að í umræðunni á Íslandi er svo mikið talað um að við þurfum að ná núvitund, total sátt og alls konar… og hennar take er… Lifðu þínu lífi!
Og ég er svo algjörlega sammála þessu og held að allt þetta tal um núvitun og það allt geti jafnvel orsakað stress hjá þeim sem ekki fatta þetta og að fólki finnist það eigi að vera að gera þetta og hitt í staðinn fyrir að vera sáttur í eigin skinni og finna sátt með lífið sitt. Ég hef alveg upplifað það stundum þegar ég sit á mínum uppáhaldsstað úti í "Slotti" í sól og blíðu og kannski með hekludót í fanginu og horfi á drekaflugur, fiðrildi og fuglana og heyri bara dásamlegan fuglasöng að ég er svo hamingjusöm. Og ég hef undanfarið bara sagt það upphátt. "Ég er hamingjusöm". Ekki af því að ég sé að eltast við það sem öllum öðrum finnst gaman, heldur af því að ég á heima á dásamlegum stað, í fallegu húsi með stórkostlegan garð og bestu nágranna í heimi. Á stóran vinahóp sem er skemmtilegustu og bestu vinir sem hægt er að eiga. Á dóttur og tengdason sem gengur vel í lífinu og voru að kaupa sína fyrstu íbúð og framtíðin er björt hjá þeim. Við Þráinn erum ennþá bestu vinir og kærustupar og njótum félagsskapar hvors annars (ekki samt halda að við þvörgum ekki stundum) keyptum okkur bát í fyrra og förum að sjósetja hann bráðum (hefur beðið vegna annarra anna) og það er fátt dásamlegra en að sigla út úr Mandal og skoða allar fallegu eyjarnar þar í kring, það gerist eitthvað innan í mér á þannig stundu.
Ég fer ekki í utanlandsferðir nema Ísland og DK því við höfum ekki efni á öðrum ferðum líka og það verður alltaf forgangur að fara heim og hitta fólkið sitt en það er líka vegna þess að við erum með 13 ára gamlan hund sem hefur bara verið erfitt að fá pössun fyrir mörgum sinnum á ári en hans tími er bráðum kominn og þá getum við farið eitthvað meira ef það er það sem okkur langar til. Ekki af því að allir aðrir eru að ferðast svona mikið.
Í dag ætlum við íslendingar í Suður Noregi að halda hátíðlegan 17. júní og við ætlum að hittast í Ravnedalen í 22 stiga hita og sól, það verður dásamlegt og eftir það ætlum við að kíkja á nýju íbúðar eigendurna og sjá hvernig þeim gengur að koma sér fyrir og endum svo daginn í Slottinu með hvítt á kantinum og eitthvað gott á grillinu. Hitum kannski pottinn og dettum í söng sem er eitt af því besta sem ég veit. Er reyndar dáldið spennt líka að vita hvort við verðum vör við partý hjá nýjum nágrönnum því þau eru búin að tilkynna í bæjargrúbbunni á FB að það verði innflutningspartý hjá þeim svo það er eins gott að maður verði var við það. Að semsagt það verði ekki bara sextugu skrítnu íslendingarnir á Nesan sem halda hávaðasöm partý með söng og gleði.
Ég man ekki hvort ég hafi verið búin að segja ykkur frá því að hérna í nágrenninu, nánar tiltekið í brekku hérna fyrir ofan býr 86 ára gömul kona sem einu sinni var bankastjóri hérna í Øyslebø og allir þekkja og elska. Þegar við vorum búin að búa hérna í nokkur ár, þá kom hún í heimsókn með göngugrindina sína og færði okkur blóm. Sagðist skammast sín svo mikið fyrir að vera ekki löngu búin að þessu en hún hefði bara ekki verið svo góð til heilsunnar. En blómin voru til að bjóða okkur velkomin í nágrennið og svo vildi hún bara segja okkur að hún sér niður í garðinn okkar þegar hún situr við eldhúsgluggann sinn og hún sagðist elska það hvað við værum oft með gesti (partý) í garðinum okkar og hún heyrir að það er gleði og svo syngið þið svo mikið og ég elska það sagði þessi 86 ára gamla kona. Ég var dauðhrædd að hún ætlaði að kvarta yfir hávaðanum sem stundum væri hjá okkur en nei nei hún elskar það hvað það er mikið líf og gleði í garðinum okkar. Síðan hafa liðið nokkur ár og við hittumst endrum og eins, hún hefur aftur fært okkur blóm og ég færi henni alltaf sultu þegar ég geri. Hún gerði sér líka lítið fyrir og mætti í Kulturhagefestin sem Lars við hliðina heldur árlega í ágúst í fyrra og sat eins og drottning á fyrri tónleikunum sem nota bene voru haldnir í Slottinu okkar. Hversu dásamlegt er það að eiga svona nágranna.
En nóg um það í bili, ætla að fara að sturta mig og gera mig klára fyrir daginn sem verður dásamlegur, af því ég veit það.
Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.


