Já það fer víst ekki fram hjá neinum að ég er frekar litaglöð. Held ég hafi alltaf verið það en einhvern veginn ýtt því til hliðar á ákveðnum tíma í lífinu en núna eftir að ég flutti til Noregs þá hef ég leyft mér að kaupa þau föt sem mig langar í, ekki það sem er eins og allir aðrir vilja og nota. Sama á við um heimilið og umhverfið mitt. En það er þó einn galli á þessu og það er að maðurinn minn er ekki eins litaglaður og ég.

Já þarna kom punktur því þetta getur alveg verið dáldið erfitt og maður er ekkert alltaf mjög klár í því að miðla málum eins og ætti að gera. En við reynum. En sko þó ég sé mjög litaglöð þá langar mig ekkert að stofan hjá okkur sé gul og rauð og blá og þess háttar, ég hef alveg smekk fyrir hönnun, litum og útliti. Þess vegna vel ég gráan sófa en litskrúðuga púða og þarna mætumst við Þráinn með það klassíska og svo kreisí Stína.

En þegar maður skoðar samt mublur og punt sem við eigum þá hefur litagleðin alltaf verið hjá okkur, sérstaklega grænt og orange. Okkur langar að gera eitthvað við þennan vegg á bak við sófann, við erum mjög ánægð með nýja litinn í stofunni sem er ljós en samt með litablæ sem passar við allt. Svo er skorsteinninn grár, sýni hann hérna fyrir neðan. En hvað við eigum að gera við vegginn þarna er spurningin. Eigum við að setja viðarplötur eins og eru hér á þessari mynd. Eða hreinlega bjálka og fá inn þessa hlýju stemningu sem við okkur líkar við. Eða hreinlega veggfóður? Og þá hvernig veggfóður? Mér þætti erfitt að velja það, vegna þess að málverkin og klukkan á veggnum eiga alltaf að vera þarna. Þetta er bara stofan okkar svona. Svo veggfóðrið má ekki taka frá þessum hlutum athyglina. Úff já þetta getur sko verið erfitt og endilega sendið mér hugmyndir ef þið hafið.

En sem sagt stofan er ekkert í sterkum litum nema málverk og púðar og svo kemurðu inn í borðstofu sem er máluð í sama lit og stofan og borðstofuborð, grænt með viðarplötu á en stólar í smá litum og það hefur mér fundist vera æði. Aðeins og taka litina inn með. Svo kemurðu inní eldhúsið sem er málað í sinnepsgulum lit, innréttingin græn með dökkbrúnum borðplötum. Og sumum finnst þessi guli litur of mikið en ég er tvisvar búin að mála eldhúsið með sama lit því svona vil ég hafa þetta eldhús. Eeeen svo fékk ég líka leyfi til að kaupa límmiða á flísarnar sem eru ansi litskrúðugir og fallegir að mínu mati. Þannig að eldhúsið er mitt. Litagleði ríkjandi og það er kannski þess vegna sem ég hef orðið meira kreatív í eldhúsinu undanfarin ár. En svo kórónaði ég eldhúsið um daginn með því að líma litlar handmálaðar mandölur á hvítan lista sem er fyrir neðan efri skápana en þessi listi var alltaf með ljósaseríu á sem var fyrir löngu orðin ónýt en fékk alltaf að vera þarna. Svo tók ég hana og þá allt í einu varð þessi listi svo .... svo hvítur! Og ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera við hann þegar ég fékk þessa mandölu hugmynd. En eins og allir vita sem þekkja mig þá fékk ég dellu í fyrrasumar að mála mandölur á glasabakka en það eru takmörk fyrir því hversu marga glasabakka kona getur málað svo ég hef verið að reyna að finna uppá einhverju öðru en OCD mitt leyfir ekki mikið meira en mandölu munstur eða í mesta lagi blómamunstur. Svo einn daginn fékk ég þessa hugmynd og mældi listann og fann út að ég gæti málað mandölumunstur á litla miða í stærðinni 6x6cm og það 48 stk. sem ég og gerði. Vá Kristín Jóna að ná að halda áfram með eitt verkefni í nokkrar vikur er saga til næsta bæjar en mér tókst að klára og þá tók við pælingar hvernig best væri að líma þessa litlu miða á listann en ég á hugmyndaríkar vinkonur sem datt í hug að ég gæti sett bókarplast yfir og þar með þvegið og allt þennan lista. Sem ég og gerði, já sko eða Þráinn. Hann er miklu flinkari en ég í höndunum svo það endaði með að hann límdi allar litlu mandölurnar á listann og ég setti bókarplastið yfir og volla listinn kominn upp og ég elska hann. Elska það að þarna eru alls konar litir í kaos og allt.

Eins og þið sjáið þá er hann svo flinkur, maðurinn minn og fékk þessa dásamlegu hugmynd að nota alla gömlu strauboltana sem við eigum uppá punt til að hafa ofaná miðunum með límið var að taka sig. Og já talandi um straubolta, þetta er alveg ótrúleg geðveiki að ég hafi fengið æði fyrir gömlum strauboltum þegar ég fór að fara í bruktbutikker í Noregi því, já sko því ég strauja ekki. Við Þráinn erum búin að búa saman í nærri 44 ár og höfum átt einn straubolta, sem reyndar virkar ennþá og er með gufu, keyptur í Tanganum á sínum tíma. Enda þýsk gæðavara og lítið notuð. Ég segi gjarnan frá skemmtilegri sögu af Mirruskottu þegar hún var um 5 eða 6 ára, þá tekur Þráinn fram strauborð til að fara að strauja einhverja skyrtu sem hann var að fara að nota og stelpan kemur fram og sér pabba sinn vera að setja strauborðið upp og glápir á hann og segir: "Ha, eigum við svona?" Sem sagt hún alla vega sá okkur ekki strauja fyrr en hún var um 6 ára, ha ha ha. Og já við eigum straubolta frá fyrri hluta 19 aldar og mögulega einn frá 18 öld (nei ég veit ekki) og nýjasti er frá 1983. En alla vega strauboltarnir gerðu sitt gagn í þessari framkvæmd.

Og svona lítur nú gersemin út komin upp og hérna sjáið þið líka að við kaupum helst bara eldhústæki sem eru rauð og ég get alveg sagt ykkur að ketillinn okkar er svartur og er alltaf settur inní skáp eftir notkun, ég þoli ekki að sjá hann á eldhúsborðinu mínu. Já ég er pínu kreisí og vitið hvað, ég er að verða 63 ára og gæti ekki verið meira sama. Maður er sko löngu hættur að gera hlutina eins og allir hinir gera þá.

Mér finnst eldhúsið mitt geggjað og ég elska þennan gula lit. Þráinn hefur oft talað um að kaupa nýja innréttingu en vitið hvað, mig langar ekkert í nýja. Finnst þessi bara geggjuð og jú hún er ekki praktísk en við erum bara tvö í heimili og ég myndi alltaf skilja það ef hér byggju hjón með 2 börn að vilja fá stærri innréttingu með betra skúffuplássi.

Jæja nú erum við komin inní eldhús og fyrir innan eldúsið er lítið.. ja ég veit ekki hvað á að kalla það, hefur ábyggilega verið borðkrókur í gamla daga en var lengi vel skifborðskrókurinn minn en þar sem ég hef flutt skrifborðið mitt í stúdeóið (ekki lengur notað sem stúdeó en er þó með ljósum og bakgrunnum en alltaf kallað stúdeó, því eitthvað verður maður að kalla herbergið) og ég fékk skyndilega áhuga á að prófa að baka súrdeigsbrauð, þá fékk ég þá flugu í höfuðið að hafa þar bakarahorn og bara allt sem þú þarft að nota í bakstur er uppi á borði alltaf.

Hérna sést sem sagt eldhúsið yfir í bakarahornið mitt. Afsakið að ég tók ekki til fyrir þessa mynd, því myndin var upphaflega bara ætluð Gurrí vinkonu því við vorum að diskutera lit á bakarahornið. Og viti menn ég er að fara að mála þarna núna á eftir. Hvað litur haldið þið að komi þarna á þessa tvo hvítu veggi? Og athugið að Þráinn er búinn að segja að ég megi ráða þarna. Og Gurrí vinkona sagði að þessi litur sem við völdum væri svo fullkomin útfrá eldhúsinu mínu með mínum fallega gula lit, svo kæmi þessi litur og fyrir innan þarna er stúdeóið mitt þar sem listakonan Kristín situr og vinnur myndir og býr til plaköt til að selja. Einmitt svona plaköt eins og hangir þarna á veggnum og segir að á þessu heimili eru bökuð vandræði.

Ég bæti við mynd og smá texta hérna við á morgun til að sýna ykkur.

18. feb. 2026

Vá ég verð bara að setja að ég er sjúklega ánægð með breytinguna, þvílíkt flottur litur, dáldið dökkur en það er allt í lagi þarna. Ég er svo búin að panta plaköt frá Mirrafoto til að setja þarna á auða vegginn og varð fyrir valinu Spur Cola og Ríó kaffi, enda eru það dáldið uppáhaldsplaköt hjá mér. Maður verður að sjálfsögðu að hafa sína eigin list heima hjá sér, en ekki bara listaverk eftir einhverja aðra.

Og þessar myndir fara svo á vegginn eftir nokkra daga, en sko fyrir þá sem ekki vita, þá pantaði ég þær í gær og þær verða komnar á föstudaginn, þetta er svo ótrúlega flott þjónusta hjá þessu fyrirtæki sem ég er í samstarfi við.

Þangað til næst,
ykkar Kristín á Nesan.