Það þarf stundum ekki nema eitt orð til að kveikja heilt lag í hausnum á mér — og allt í einu er dagurinn orðinn að tónlist. 🎶
Hver hefur ekki upplifað það að vera með eitt ákveðið lag á heilanum í heilan dag, og kannski lag sem er svo leiðinlegt og pirrandi að maður er að verða kreisí? Ég upplifi það að fá lag á heilann á hverjum degi, það er bara spurning í hvaða aðstæðum ég er í, við hvern ég tala og hvað talað er um sem stýrir því hvaða lag kemur.
Td. í morgun þá fór ég með bílinn á verkstæði þar sem þeir gleymdu að núllstilla meldinguna sem tölvan hafði komið með um smurningu um daginn, en þeir voru sko búnir að smyrja bílinn svo þetta var stutt stopp, og ég vissi að þeir höfðu lokað í rúma viku í kringum páskana, svo ég fór að sjálfsögðu að spjalla við skrifstofustjórann um það hvort hann hefði ekki haft gott frí og hann hélt það nú, hann hefði farið með fjölskylduna til Phonix eða Fönix eins og ég heyrði það. Já og hvað lag haldið þið að ég sé með á heilanum núna?
Já auðvitað, lagið með Páli Óskari, "Líkt og fuglinn Fönix rís, fögur lítil diskódís duru duru du...... kann nefnilega ekki allan textann en jú jú þetta er búið að sönglast í 6 tíma núna, svo það er spurning hvort eitthvað annað lag komi seinna í dag eða hvort þetta vari eitthvað lengur.
Ég reyndar fæ mjög oft lög á heilann og mjög oft í samræðum, dett ég í að syngja eina og eina setningu úr lagi og það gerðist einmitt hérna fyrir jólin þegar við vorum með laufabrauðsbaksturinn að það var eitthvað verið að tala um grýlu og leppalúða og jólasveinana íslensku að ég söng hástöfum: "Nú er hún Grýla dauð, hún gafst uppá að róla sér á róluvöllunum, því það vildi enginn gefa henni brauð........." og bæði Arndís og Lovísa hlógu því þær héldu að ég sæti bara í stofunni að skálda, þær höfðu sem sagt aldrei heyrt plötunum með Hrekkjusvínum sem er ein mesta snilld sem gefin hefur verið út á Íslandi. Svo ég kynnti þær fyrir þeirri plötu, veit ekki hvort þeim þyki þetta sama snilldin og mér en ég elska líka Spilverk Þjóðanna og Þursaflokkinn og þetta eru nú alls sömu mennirnir eða að mestu leiti.
En það er þetta með heilann í okkur og hvernig hann virkar, minn stoppar aldrei og finnur bara uppá hlutum frekar en að hvíla sig, aðrir slökkva bara og það er ekkert. Vá í alvöru og það er ekkert. Ég væri stundum svo til í það, er stundum svo þreytt og langar í hvíld og eftir að vera búin að vera á breytingarskeiðinu í 24 ár, þá sef ég aldrei nema 3 tíma í einu sofna seint og vakna oft á nóttunni og þá einmitt heldur þessi heili að hann eigi að vera að finna upp hluti, semja bréf til sorpfyrirtækisins vegna breytinga á sorphirðu eða bara bullar einhverjar sögur og þetta gerist þó ég sé að hlusta á hljóðbók. Af hverju er ekki löngu búið að finna upp tæki sem getur tekið þetta allt upp því ég er viss um að ég hafi oft leyst heimsmálin í rúminu mínu. En verst var þegar ég var með kvíðann, þá bjó þessi heili til alls konar uppspuna og magnaði upp það sem sagt hafði verið eða það sem EKKI hafði verið sagt en ég er sem betur fer betri af kvíðanum og næstum finn aldrei fyrir honum lengur, meira svona bara normalt. En ég er líka búin að komast að því af hverju ég var komin með svona mikinn kvíða. Jú það er út af svefntöflum sem ég fékk því ég átti svo erfitt með svefn. Ég hætti á öllum lyfjum fyrir 1,5 ári og losnaði við alls konar kvilla í kjölfarið. Komst að því að hóstinn minn og vélindabakflæðið er vegna glútenóþols, kvíðinn vegna aukaverkana svefnlyfja og exemið á augnlokinu og kláðinn undir ilinni líklega glútenóþol líka, því það lagast allt ef ég borða ekki hveiti.
Ok, þetta átti ekki að vera heilsublogg heldur skemmtiblogg með skemmtilegum lögum og nú fékk ég nýtt lag á heilann meðan ég er að skrifa þetta og hvaða lag haldiði að það sé?
Kemur út frá orðinu hveiti! Jú ertu ekki fatta? Þegar piparkökur bakast, kökugerðarmaður tekur bara .....Þegar öllu þessu er lokið
hellast átta eggjarauður saman við og kíló hveiti................
Ætli sé ekki best að nota tækifærið og skella í eins og eitt speltbrauð núna.
Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.
Ps. í einni afmæliskveðjunni um daginn var ég kölluð skrítin skrúfa og mér þykir svo ótrúlega vænt um það og er stolt af því að vera einmitt það, skrítin skrúfa.


