Jú jú auðvitað aftur og aftur meðan þú átt ketti. Nei ég meina hvað haldiði að hafi skeð? Í fyrrinótt þá vakna ég við það að verða bitin í fingurinn og ég meina sko fingurgóminn, ég tek um puttann og nudda hann og hugsa bara eitthvað... veit ekki hvað og sný mér á hina hliðina og sofna aftur, verð heitt og tek sængina af mér að hluta til og vakna þá aftur við sting eða bit í mjöðmina og þá hugsa ég andskotinn! Er komið KLEGG hérna inn í herbergið mitt og bara bítur mig stanslaust!
Ég opna gluggann meira til að kæla herbergið og leggst svo aftur og vef bara sænginni vel utan um mig og vonast til að kafna ekki undir henni. Sofna svo bara og restin af nóttinni var tíðindalaus. Svo þegar ég vakna rámar mig eitthvað í þetta en er ekkert að velta því mikið fyrir mér. Stend upp og klæði mig í buxur og bol og kippi svo einni peysu sem liggur á pullu við rúmið og er að klæða mig í ermina á henni þegar mús stekkur út úr erminni og undir rúm. Já krakkar, ég sagði mús. Það var mús í erminni á peysunni minni.
Ég var að hugsa um að vekja Þráin (akkúrat núna sofum við í sitthvoru herberginu vegna mismunandi vakna og háttatíma hjá okkur svo hann var ekki í sama herbegi annars hefði hann nú vaknað við þetta. En ég ákvað að loka herberginu og ná í annan köttinn og leyfa honum bara að vinna sitt verk. Fer bara niður og fæ mér kaffi. Svo þegar Þráinn vaknar þá stekk ég upp til hans og segi honum fréttirnar og hann bara andsk. helv. kettirnir að koma inn með mús og missa hana svo. Ég róa hann aðeins niður og bíð honum kaffi og segi við förum svo bara upp á eftir og sjáum hvort Kiwi sé búin að ná henni og ef ekki þá reynum við það.
Kiwi lá bara úti í horni sofandi þegar við komum upp. Hvar er tryggðin við okkur? Jæja sko það var sól, og þetta er sólríkasta herbergið í húsinu og ég þurfti nú bara að byrja á að rífa mig úr næstum öllum fötunum áður en ég gæti farið að rydda til öllum húsgögnum, sængum og dóti. En við byrjum á að lyfta kögrinu á undirlakinu til að reyna að sjá undir rúmið en sko það er annað, þessi rúmbotn er svo lágur að það er varla að við komum hendinni á okkur undir. En ég leggst flöt á gólfið til að reyna að sjá undir og jú jú ég sé þúst þarna eða er það hjólið undir rúminu? Nei það er þúst. Svo mér dettur í hug að sækja Nölu kannski er hún duglegri að veiða en Kiwi þó við höldum annað. Ég næ Nölu við matarskálina sína og ríf hana frá, segi þú mátt ekki vera södd í þessu verkefni því nú reynir á þig. Fer með hana upp og það er eins og við manninn mælt hún rýkur beint undir rúm með alls konar skrítnum hljóðum en ekkert gerist í sjálfu sér og við erum ekki tilbúin að bíða allan daginn eftir þessu svo Þráinn reynir að lyfta upp rúmbotninum og skella niður til að fæla músarangann og tekst það eitthvað en þær eru bara svo snöggar þessar litlu hagamýs.
Svo þetta er ekki að duga, þannig að við byrjum að taka náttborðin frá því það var hægt að fela sig undir þeim, það dugði ekki neitt, svo þá varð að taka sængur og kodda og allt af rúmunum (rúmbotnarnir eru 2) og svo þurftum við að taka dýnurnar af líka og henda fram á gang, því það varð að vera svigrúm að sjá músarangann til að geta fangað hann. Nei ekki dugði það svo þá var ekki um annað að ræða en að setja rúmbotnana uppá kant svo ekki væri hægt að fela sig undir þeim og viti menn, nú sáum við hana aftur en kettirnir báðir búnir að missa áhugann, eða sko Kiwi var aldrei með hann. Við erum með stóra Atlasbók á gólfinu stillta upp við vegg og haldiði að hún hafi ekki verið þar bakvið. Bókin upp, og þá skaust hún bak við viðarofninn og svona gekk þetta fram og til baka, ég var öðrum megin að trufla hana og Þráinn við bókina og svo loksins hleypur hún eitthvað og hverfur og Þráinn lyftir upp rúminu sem var uppá kant (og sko nota bene, þetta eru rúmbotnar með rafmagnsgræjum undir og drulluþungir) og sér músina, bregður og missir rúmið niður og málið er dautt, og já músin líka. En svefnherbergið í rúst og við rennandi blaut af svita við að hamast við þetta í hitanum og sólinni. Ég henti köttunum út og sagði þá vita gagnslausa og núna kemur aftur tímabil sem ég loka herbergjunum.
Klegg, hélt ég að hefði bitið mig um nóttina en nei nei það var MÚS!
Þangað til næst, ykkar Kristin á Nesan.

