Já er ekki vorið tími breytinganna? Ég er alla vega alltaf svo uppgíruð á vorin að ég get flutt fjöll ef þannig má komast að orði. En þessar breytingar sem ég er að tala um eru nú smávægilegar þannig séð en þannig er að ég er með heimasíðuna mína hýsta hjá One.com og nú er ég er að flytja bloggið mitt frá WordPress sem er tengt við one.com yfir til þeirra, þeir voru sem sagt að bæta við sína þjónustu bloggi. Þetta nýja blogg byrjar á árinu 2025 og ég er með þessa sömu 3 flokka, privat blog, matarblog og myndablog. Fyrstu 2 eru á íslensku en ljósmyndabloggið hef ég á ensku því það er fólk sem ekki talar íslensku sem fylgir mér þar. Jú jú líka eitthvað af norðmönnum sem fylgja mér privat en íslenskan er ennþá mitt aðaltungumál og sérstaklega skrifmál svo þegar maður bloggar frá hjartanu þá notar maður tungumálið sem maður hugsar á og það er ennþá íslenskan.

En gamla bloggið mitt mun lifa á hinum staðnum út árið og hér er linkur á það.

Og talandi um tungumálið þá var ég er gerast meðlimur í grúbbu á FB sem heitir "skemmtileg íslensk orð" og það er svo gaman að sjá orð og orðatiltæki sem við notum kannski ekki lengur í daglegu tali, rifjar upp alls konar. Ég bjó nú einmitt til mynd af Íslandi með óteljandi veðurorðum á plakatinu sem þið getið séð hérna: Iceland, how is the weather.

En nú er apríl næstum hálfnaður og flugu 2 fyrstu vikurnar á methraða framhjá með vel nýttum tækifærum til að fagna, en ég segi alltaf að ég eigi afmæli fyrstu tvær vikurnar í apríl. Fyrst kemur trúlofunarafmæli 2. apríl, fermingarafmæli 3. april, afmæli 7. april og brúðkaupsafmæli 15. april sem er á morgun og hvernig ætlum við að halda uppá 30 ára brúðkaupsafmæli? Jú við ætlum til Stavanger að hjálpa Önnu og Anders að flytja. En jú jú við skellum okkur út að borða líka en hvað gerir maður ekki fyrir vini sína? En við erum svo heppin að vera í páskafríi núna svo við verðum komin heim á föstudaginn langa til að njóta páskanna hérna á Nesan, skellum okkur í göngutúra, förum í pottinn og byrjum kannski að vinna í því að klára að mála eldhúsið og skvera borðplöturnar en það verður kannski smá vinna. Svo þetta verður bara bland af vinnu og ....

En annars er ég eitthvað frekar andlaus núna, en vildi bara segja frá því að það væru breytingar í gangi, ég þarf svo að fara að verða duglegri að blogga aftur, því ég er sjálf svo minnislaus að ef ég ætti ekki blogg síðan 2003 þá myndi ég hreinlega ekki muna neitt, ha ha ha.

Endilega kíkið svo líka á myndirnar sem ég er með í sölu hérna: My little digital photo shop.

Og svo eru hérna linkur á Redbubble búðina mína, en hér er hægt að kaupa töskur, púða, myndir á vegg og alls konar dót með áprentuðum myndum frá mér. My Redbubble shop.


Vonandi verða páskarnir æðislegir og passið að borða ekki allt of mikið af páskaeggjum (ég hef ekki fengið páskaegg í alla vega 7 ár) ef ég man þetta rétt, gæti kannski flett því upp, ha ha ha!

Ykkar Kristín á Nesan.