Eins og þið líklega vitið öll, þá eru öll plakötin mín sem ég hef verið að búa til og er að selja á www.mirra.no gerð uppúr ljósmyndum frá mér. Hvort sem er landslagsmyndum eða portrait. Nýjasta verkefnið mitt er Ajax og Spákonan og eru þau plaköt unnin uppúr myndum af henni Maddý heitinni tengdamömmu. Og þegar ég var að leita að þessum myndum til að vinna með, þá fékk svo mikinn söknuð til hennar sem gat verið svo skemmtileg og alltaf til í að leika með mér þegar hún var hérna úti í heimsókn hjá okkur. Verst að hún kom aldrei síðustu árin sín, þó heilsan hefði alveg boðið uppá það, þar til alveg í restina. Þegar ég heimsótti hana á Íslandi þá saknaði ég hennar á sama tíma, því hún var ekki þessi skemmtilega kona sem hún var alltaf þegar hún var hérna úti hjá okkur. Hún vissi allt um okkur, um alla staði hérna í kring og þekkti alla sem við þekktum. Og ekki minnst var svo mikið til í að leika sér með okkur alltaf.

En það er gott að geta rifjað upp þessar góðu stundir og nú er ég búin að gera hana ódauðlega með nýjustu plakötunum, sem mér þykja svo frábær og vonandi finnst ykkur það líka. Það skiptir nefnilega svo miklu máli þegar maður er að gera eitthvað svona að heyra hvað fólki finnst. Auðvitað eru læk æðisleg en komment og einlæg komment eru það sem skiptir máli, ásamt því auðvitað að selja eitthvað, því þá veit maður alveg að þetta hitti í mark.

En nú langar mig að sýna ykkur hérna nýju plakötin ef þið hafið ekki rekist á þau á FB eða Insta og svo ætla ég að sýna ykkur nokkrar ljósmyndir úr seríunni sem ég tók af henni hérna um árið og plakötin eru unnin uppúr.

Gjörið svo vel.

Og svo koma hérna upphaflegu ljósmyndirnar ásamt fleirum.

Eins og þið sjáið þá skemmtum við Maddý okkur sjúklega vel í þessari töku og eins og ég segi, myndirnar lifa áfram ásamt minningunum og nú er sú gamla komin á plakat og ég er viss um að hún skellihlær þarna uppi þegar hún sér þau.

Þangað til næst,
ykkar Kristín á Nesan.