BLOG
MORGUNGRAUTURNN MINN!
Eins og þið vitið sem þekkið mig þá elska ég kartöfluflögur og hvítt brauð en ég ákvað heilsunnar vegna að fara að vinna í því að breyta hugarfarinu og reyna að borða hollara og taka út hveiti og sykur. Ég var svo heppin að ramba á bók sem ég er að lesa sem hjálpar og uppgötvaði svo að þetta er ekki ósvipað því þegar ég hætti að reykja, þá tókum við 3 mánuði í að hlakka til að hætta að reykja og takmarka hvar við mættum reykja. Svo þegar við hættum þá upplifði ég bara frelsi. Svo ég er að reyna að nota sömu aðferð, nema það er erfiðara því ég get ekki hætt að borða. En ég prófaði að sleppa öllu hveiti og sykri í 2 vikur og svo fengum við okkur pizzu og það er ekki víst ég geri það aftur því liðirnir á mér krepptust bara allir og ég fékk verki út um allt. Uppgötvaði semsagt að ég sé trúlega með hveitióþol sem ég vildi sjálfsagt ekki vita af áður og svo ef þú ert alltaf með liðverki þá venstu þeim og tekur ekkert eftir því hvort þú ert verri eða betri daginn eftir. En þarna fann ég það
9 May 2026
BROKKOLÍ- OG EGGJASALAT
Jæja þá er best að segja ykkur frá næstu frábæru uppskriftinni sem ég var að prófa í vikunni, og það er með mat eins og hekl, ég get ekki farið eftir annarra manna uppskriftum og verð alltaf að aðlaga þær að mér. En það er allt í lagi meðan maður heldur sig við sama magn af grænmeti, prótíni og fitu. Já elskurnar ég er farin að spá í þetta, sjáum svo til hvernig það mun ganga. En ég er bjartsýnni núna en nokkurn tíma áður.
8 May 2026
FÖSTUDAGSBAKKINN
Já hvað skyldi það nú vera? Jú, þar sem ég er að taka út hveiti og sykur þá verður ekki lengur pizza á föstudögum. Kannski seinna og þá glútenfrí en akkúrat núna er best að sleppa henni svo það kalli ekki á meira hveitiát hjá mér. En já aftur að föstudagsbakkanum þá er það í rauninni alls konar fingramatur sem er innan hollustunnar sem ég er að temja mér núna og skiptir þá miklu máli að nota hugmyndaflugið til að gera þetta meira aðlaðandi og skemmtilegt að borða. Síðasta föstudag (var ekki búin að ákveða matarblogg og myndatökur þá) var ég með rúgbrauð með reyktum laxi og kartöflusalati ofaná, parmaskinka, hrökkbrauð, ostur og paprika niðurskorin. Allt smakkaðist æðislega og bara svo gaman að borða þetta. Jú jú haldiði að ég hafi ekki fundið mynd. Auðvitað tók ég mynd af þessum bakka, ég var svo ánægð með hann. En föstudagsbakkinn í kvöld verður ekki alveg eins en kannski svipaður, nema ég ætla að prófa í fyrsta sinn Avókadó stangir sem eru í rauninni bara maukað gamalt avókadó, egg o
7 May 2026
🇮🇸 Iceland - Between Sea and Mountains
When I decided to create this theme, Between Sea and Mountains, I suddenly realized something funny — I actually don’t have that many photographs of mountains. But then again… there are mountains in Fjarðárgljúfur, Kirkjufell is a mountain, and the Elephant Rock in Vestmannaeyjar is most definitely a mountain too, at least in my mind. Then there is Jökulsárlón, Hvítserkur, and Grótta by the sea, so I quickly concluded that I already had quite a few posters that fit perfectly into this collection. What makes these posters so special to me is that I took every single photograph myself, edited them myself, and carry a story connected to each one of them. The photograph of Hvítserkur was actually taken before photography became my great passion. When I went searching through old images from that trip, I discovered that at the time I absolutely insisted on having people in almost every photo, so my daughter and husband appeared in most of them. Thankfully, I managed to find one beautiful im
6 May 2026
INNBAKAÐUR KJÚLLI
Ég tók 2 kjúklingabringur og skar þær í tvennt og barði sundur og saman, eða þannig. Kryddaði þær svo með salt og pipar. Skar þá 2 kartöflur í sneiðar og setti á olíusmurðan álpappír. Lagði þá kjúklingabringu ofaná kartöflurnar og skar niður lauk og raspaði gulrætur og mýkti á pönnu. Setti það svo ofaná kjúklinginn og lettrømme sem er einhvers konar sýrður rjómi á Íslandi og svo setti hann fullt af rifnum osti yfir allt og lokaði svo álpappírnum og bakaði í Airfryer á 180° í 35 mín. Hefði getað verið aðeins styttra, ég myndi giska á frá 25 til 35 mín eftir stærð. Ég bjó svo til æðislegt salat með úr káli, rauðlauk, gúrkum og maís og pínulítinn fetaost með. Algjörlega frábær máltíð sem ég hiklaust mæli með. Þangað til næst, ykkar Kristin á Nesan.
6 May 2026
FIMMTUDAGSSÚPAN
Ég fann geggjaða uppskrift af einfaldri og hollri súpu sem ég ætla að kalla fimmtudagssúpan.
5 May 2026
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK