
FISKUR Í FORMI
Það er eitt sem getur verið dáldið erfitt fyrir mig þegar ég er að taka mig á í mataræðinu og það er að ætla að fara eftir ákveðnum uppskriftum, ég get það í smá tíma en svo kemur bara að því að ég verð að fá frelsi til að vera kreativ í eldhúsinu en ég er samt búin að læra dáldið og get núna verið kreatív á hollan máta. Ef þið hafið ekki lesið eða séð hjá mér, þá er ég að reyna að taka út hveiti og sykur úr matnum mínum en sykurinn hef ég nánast ekki borðað í 3 ár (nema með undantekninum, ekki dagsdaglega alla vega) en ég var bara að uppgötva þetta með hveitið í desember og að ég er líklega með áunnið glútenóþol þar sem ég hef verið fíkill í flögur, hvítt brauð og alls konar óhollustu. Hvorki borðað flögur né brauð í meira en mánuð og liðverkirnir eru næstum horfnir og óþægindi í vélinda orðin miklu minni, svo ég verð stanslaust að vera að minna mig á það þegar ég sé einhvern í TV borða pizzu eða pylsu í brauði eða hreinlega hvítt ristað brauð með smjöri og osti sem er það besta í hei
4 May 2026

ÞORSKUR MEÐ PESTÓ KARTÖFLUSALATI
Ég fékk að gjöf frá Þráni um daginn, risastóra matreiðslubók með eingöngu kartöfluuppskriftum og jeminn það sem ég varð hamingjusöm að fletta henni. Nú er ég búin að prófa 2 rétti annað er kartöflu- og blómkálsmús og hitt er pestó kartöflusalat. Ég ákvað að vera með ofnbakaðan fisk með þessu kartöflusalati og það var sko aldeilis rétt ákvörðun því þetta passaði svo sjúklega vel saman.
3 May 2026

KARRÍ- KÓKOSKJÚKLINGUR
Geggjaður réttur sem ég gerði í gær, karrí kókóskjúklingur vil ég kalla hann en ég hef ekki verið hrifin af karrí en ákvað að prófa núna, málið er að þegar ég sé uppskrift í bók eða á netinu þá annað hvort á ég ekki allt í hana eða mér finnst eitthvað vont eða ekki passa svo það endar alltaf með nýrri uppskrift og það er það sem gerðist í gær.
2 May 2026

TVÍBAKAÐAR KARTÖFLUR
Frábær réttur sem sniðugt er að gera þegar þú átt afgang af bökuðum kartöflum frá síðasta grilli
1 May 2026

Með lagið á heilanum
Það þarf stundum ekki nema eitt orð til að kveikja heilt lag í hausnum á mér — og allt í einu er dagurinn orðinn að tónlist. 🎶 Hver hefur ekki upplifað það að vera með eitt ákveðið lag á heilanum í heilan dag, og kannski lag sem er svo leiðinlegt og pirrandi að maður er að verða kreisí? Ég upplifi það að fá lag á heilann á hverjum degi, það er bara spurning í hvaða aðstæðum ég er í, við hvern ég tala og hvað talað er um sem stýrir því hvaða lag kemur. Td. í morgun þá fór ég með bílinn á verkstæði þar sem þeir gleymdu að núllstilla meldinguna sem tölvan hafði komið með um smurningu um daginn, en þeir voru sko búnir að smyrja bílinn svo þetta var stutt stopp, og ég vissi að þeir höfðu lokað í rúma viku í kringum páskana, svo ég fór að sjálfsögðu að spjalla við skrifstofustjórann um það hvort hann hefði ekki haft gott frí og hann hélt það nú, hann hefði farið með fjölskylduna til Phonix eða Fönix eins og ég heyrði það. Já og hvað lag haldið þið að ég sé með á heilanum núna? Já auðvitað,
9 April 2026

Three colors. One story.
Sometimes an idea doesn’t arrive all at once. It comes quietly — as a feeling, a shape, a color. This series began with photographs I had taken of my daughter. Raw, real moments. But I wanted to transform them into something softer. Something more timeless. I stripped everything away. The surroundings. The noise. The details that didn’t matter. What remained was form, movement, and emotion. From there, the dresses grew. Larger than life. Almost like they were breathing. The stripes became rhythm. The backgrounds became calm. And the colors found their meaning: Yellow — warmth, light, and presence. Green — balance, nature, and quiet strength. Blue — stillness, depth, and reflection. Each piece is based on my own photography. Each one carries a real moment within it — but retold in a different language. A softer one. This series is not about perfection. It’s about feeling. And maybe… about seeing the same person from different angles — just like we see ourselves. — Kristin
30 March 2026
