BLOG
✨ About the Artist
Kristin Jóna is an Icelandic photographer and visual storyteller living between landscapes and light. Her work is rooted in observation — in the delicate balance between shadow and illumination, fragility and strength. Having blogged and documented life for over two decades, Kristin’s artistic voice has evolved into something quieter, more distilled. Her photography is less about capturing a scene and more about holding a feeling. Her main blog is written in Icelandic — her mother tongue — where she shares personal reflections, recipes, photography, and everyday life. For those who wish to read and get to know her more personally, most browsers offer easy translation. Influenced by Nordic light and the emotional stillness of nature, her images are created to bring calm into interior spaces — to soften walls and create room to breathe. Each piece in In Stillness is part of a deeper exploration of presence, patience, and poetic simplicity. This is me. Untill next time, Kristin Jona @Mirr
21 February 2026
✨The story behind "In Stillness"
There comes a time in life when you begin to crave quiet. Not silence as absence — but silence as presence. In Stillness was not created in a rush. It grew slowly. In soft mornings. In forests where light filtered through trees like breath. In the fragile pause after rain. These images are not dramatic. They do not demand attention. They invite it. They are about noticing. The way dew rests on a fading petal. The way sunlight enters a forest without asking permission. The way a single bloom can stand alone in shadow — and still be complete. This collection reflects a season of slowing down. Of choosing softness over noise. Of trusting that quiet beauty holds power. In Stillness is not only about nature. It is about space. And what happens inside us when we allow it. Follow up to get more about Mirrafoto shop. Here is a link to my "In Stillness" collection. Untill next time, Yours Kristin @Mirrafoto
21 February 2026
Litaglaða konan
Já það fer víst ekki fram hjá neinum að ég er frekar litaglöð. Held ég hafi alltaf verið það en einhvern veginn ýtt því til hliðar á ákveðnum tíma í lífinu en núna eftir að ég flutti til Noregs þá hef ég leyft mér að kaupa þau föt sem mig langar í, ekki það sem er eins og allir aðrir vilja og nota. Sama á við um heimilið og umhverfið mitt. En það er þó einn galli á þessu og það er að maðurinn minn er ekki eins litaglaður og ég. Já þarna kom punktur því þetta getur alveg verið dáldið erfitt og maður er ekkert alltaf mjög klár í því að miðla málum eins og ætti að gera. En við reynum. En sko þó ég sé mjög litaglöð þá langar mig ekkert að stofan hjá okkur sé gul og rauð og blá og þess háttar, ég hef alveg smekk fyrir hönnun, litum og útliti. Þess vegna vel ég gráan sófa en litskrúðuga púða og þarna mætumst við Þráinn með það klassíska og svo kreisí Stína. En þegar maður skoðar samt mublur og punt sem við eigum þá hefur litagleðin alltaf verið hjá okkur, sérstaklega grænt og orange. Okkur l
17 February 2026
Hurðir og gluggar
Ég hef verið dugleg að ganga. Úti í snjónum, úti í kyrrðinni. Í hverri ferð staldra ég aðeins við – ekki lengi, bara nógu lengi til að sjá. Hurðir í alls konar litum. Gluggar nýjir og gamlir. Sumir opnir, aðrir lokaðir. Sumir bera spor tímans, aðrir eru nývaknaðir. Ég veit ekki hverjir ganga um þessi gólf, hverjir líta út um þessa glugga eða hverjir loka hurðinni á kvöldin. En mér finnst eins og húsin tali – lágt, hægt og án orða. Allt er þetta tekið hér í Øyslebø. Í gönguferðum þar sem snjórinn dempar hljóðin og augnablikið fær að vera nákvæmlega eins og það er. Kannski er þetta bara hurð. Kannski bara gluggi. En stundum er það nóg.
22 January 2026
Sumar ferðir eru ekki bara leið frá A til B.
Sumar ferðir eru ekki bara leið frá A til B. Þær eru augnablik sem setjast í hjartað. Þessar myndir eru teknar út um framrúðuna, á morgnana, þegar dagurinn er rétt að byrja og heimurinn virðist halda niðri í sér andanum. Snjórinn liggur mjúkur yfir trjánum, vegurinn teygir sig áfram og allt er umlukið þeirri kyrrð sem aðeins veturinn kann. Fyrri daginn hugsaði ég: þetta verður varla fallegra en þetta. En veturinn brosti bara hljóðlega og sýndi mér daginn eftir að fegurðin á sér alltaf eitt lag enn. Þessi leið til og frá vinnu er orðin að kyrrlátri athöfn – smá helgisiður í dagsins amstri. Augnablik þar sem tíminn hægir á sér, hugurinn fær að flakka og hjartað fyllist af þakklæti fyrir að fá að aka í gegnum slíka fegurð. Kannski er þetta síðasta snjóabloggið í bili. Kannski ekki. En þessar stundir geymi ég – í myndum, í minningum og í þeirri tilfinningu að veturinn sé stundum ótrúlega góður við okkur. Svo daginn eftir!
17 January 2026
Það var enn snjór!
Það var enn snjór. Svona snjór sem breytir morgni í mjúka kyrrð og lætur heiminn líta út eins og hann haldi niðri í sér andanum. Við lögðum af stað í morgungöngu – ég, Þráinn og Elvis nágrannahundurinn. Sporin okkar í hvítu landslagi, róleg skref, engin þörf á orðum. Allt var svo fallegt. Húsin sem stóðu þögul í vetrarbúningi, trén sem báru snjóinn af reisn, og bóndabærinn með traktorinn fyrir utan – eins og hann hafi beðið eftir augnablikinu. Brúin mín birtist aftur, að þessu sinni frá nýju sjónarhorni, spegluð í vatninu og umlukin snjó, sama brú – og samt allt öðruvísi. Þráinn og Elvis héldu áfram, örlítið á undan mér, og á því augnabliki vissi ég hvað þetta var dýrmætt. Ekki stórt. Ekki merkilegt. Bara satt. Núna er komin slydda. Snjórinn að gefa eftir. En í gær fengum við þetta. Göngu, kyrrð og minningu sem lifir áfram í myndum og í hjartanu.
15 January 2026
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK