BLOG
KJÚKLINGA- OG GRÆNMETISBORGARI
Ég tók 400 gr. af kjúklingahakki, hálfan poka af (250 gr.) blönduðu grænmeti (frosnu í poka) sauð grænmetið og maukaði og blandið síðan saman við kjúklingahakkið ásamt einu eggi og svolitlu af raspi því kjötdeigið var svo blautt án raspsins, ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að nota til að þykkja deigið og vildi ekki nota hveiti svo þetta varð niðurstaðan. Steikti í 20 mín á 180° í Lofti (Airfryer). Hitaði hamborgarabrauð og setti steiktan lauk og kokteilsósu undir og hafði gúrkusalat með “on the side” (þetta sama gúrkusalat og ég hafði með laxinum og nýja rúgbrauðinu í gær. Geggjað gott og lítur líka bara vel út.
10 April 2025
NESAN HRÖKKBRAUÐIÐ
Ég er búin að hugsa um það í talsverðan tíma að gera eigið hrökkbrauð og man bara hversu gott mér fannst hrökkbrauðið hennar Ingu en Inga er orðin svo gömul að þegar maður biður um uppskrift þá hljómar hún eins og amma í gamla daga, smávegis af þessu og slatti af hinu. Gott og vel þegar maður kann eitthvað en í fyrsta sinn verður að vera mælieining svo ég fann mér norska uppskrift svo ég væri viss um að kaupa rétt í þetta (efnin heita kannski ekki það sama en þegar ég svo fór að græja og gera, þá fannst mér ég verða að blanda í þessa uppskrift svolitlu frá Ingu þannig að þetta endar sem glæný uppskrift ala Stína á Nesan. 125 g nøtter/mandler (jeg bruker mest mandler) 3 dl solsikkerkjerner 1 dl linfrø 1 dl sesamfrø smávegis af Chiafrø örlítið af pumkinfrø 2 ss fiberhusk 1 egg 1 ts salt 5 dl vann slatti af rifnum osti og smávegis af parmesanosti Möndlurnar eru malaðar og síðan öllu blandað saman í skál og leyft að taka sig smá stund. Síðan dreift á tvær ofnplötur (smjörpappír hafður und
10 April 2025
KLEINUR
Uppskrift: 1 kg hveiti 250 gr sykur 100 gr smjör/smjörlíki 3 egg 1/2 tsk salt 2 tsk lyftiduft 4 tsk vanillusykur 5 dl súrmjólk Aðferð: Þeytt saman sykur og eggjum og síðan smjörinu bætt útí og þeytt áfram vel. Svo er öllum þurrefnum bætt útí ásamt súrmjólkinni og hnoðað í hrærivél. Öllu hvolft á hveitistráð borð og hnoðað mjög vel, hveiti bætt við eftir þörfum. Deigið á að vera aðeins blautt en þó þannig að það sleppi bæði höndum og borðplötunni. Síðan er hluti af deiginu klipinn af, og flattur út á vel hveitistráðu borði, ca. hálfs cm. þykkt og skorið út í kleinur. Ef þið eigið ekki kleinujárn má t.d. hnota beittan hníf eða pizzuskera. Skorin er lítil rauf í miðjuna á hverri kleinu og öðrum enda kleinunnar ýtt í gegnum raufina. Gott er að steikja kleinurnar uppúr 1 tólgardós á móti 2 palmín-stykkjum! En hérna í Noregi nota ég eingöngu Flott feiti. Ef feitin verður of heit verða kleinurnar of dökkar of hratt en hráar inní. Þegar ég byrjaði að steikja var ég bara með 6 i einu en endaði
10 April 2025
BANANABRAUÐ
16.02.2016 Jæja gott fólk enn og aftur kem ég sjálfri mér á óvart með að breyta, bæta og laga uppskriftir en ég ákvað að baka bananabrauð af því að ég átti 3 ónýta banana en eftir flutninga veit ég ekkert hvað ég gerði við uppskriftirnar sem voru uppá vegg hjá mér á gamla staðnum og því fór ég og gúgglaði bananabrauð en sorrý ég var ekki alveg ánægð með uppskriftina og ákvað að breyta henni mér í vil og þetta er besta bananabrauð sem ég hef smakkað svo ég ætla að gefa ykkur þessa uppskrift svo þið getið prófað sjálf. 2 egg 1 bolli sykur 50 gr. smjör 2 bollar hveiti 1 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 1 tsk kanill 3 litlir bananar Egg og sykur þeytt saman og smjörinu bætt svo útí og þeytt áfram vel. Öllu öðru síðan bætt útí og hrært saman, ekki þeyta. Bakað í ofni við 180° þar til það er tilbúið. Ekki spyrja mig um tíma því maður sér bara hvenær það er farið að losa sig frá forminu og endarnir orðnir vel brúnir, mér finnst betra að baka bananabrauð aðeins lengur en normalt og núna gerði ég það
10 April 2025
FLATKÖKURNAR HENNAR SESSELJU LANGÖMMU
Ég var að fá uppskrift af flatökunum hennar Laufeyjar ömmu og prófaði að baka þær í dag og YES þær eru svo góðar og svo komst ég að því að þessa uppskrift erfði amma frá Sesselju mömmu sinni og því er hún að fara í 4 legg núna og fljótlega í þann 5 ef við geymum hana vel. Flatkökurnar hennar Sesselju langömmu 5 bollar hveiti 1 bolli rúgmjöl 1/2 tsk matararsóti 2 tsk salt 1 mats sykur Soðið vatn 5 dl Ölum þurrefnunum blandað saman, sjóðandi vatni ( ég nota hanska) helt saman við og hnoðað vertu eins fljót og þú getur að hnoða annars verða þær seigar. Þú verður að giska á vatnsmagnið og skiptir svo deginu í kúlur og fletur út ekki of þunnar. Muna að stinga svo með gafli í kökurnar meðan þú bakar þær. Best að baka á hellu úti eða nota gamaldags pönnukökupönnu úr stáli. Ég nota gamla stálpönnukökupönnu á hellunni úti, sumir setja beint á helluna en mér finnst þetta snyrtilegra og sé engan mun á kökunum. Þessi stafli er 3föld uppskrift en ég geri deigið 3svar, margfalda ekki uppskriftina í
10 April 2025
SODAKAKA
Ég ætlaði að fara að gera gamaldags sódaköku en fann ekki uppskrift að henni, fann uppskrift að sandköku og breytti henni aðeins. Innihald: 200 gr smjör 150 gr sykur 3 egg 250 gr. hveiti 1 tsk lyftiduft 1 dl vanillusósa (piano) Þeyta vel saman sykur og egg og bæta svo smjörinu í og þeyta áfram. Hveiti, lyftiduft og vanillusósu síðan bætt útí og hrært smá stund. Að lokum helt í formkökuform, sett inn í kaldan ofn með stillt á 180 gr. Bakað í 45 mín. eða þar til ekkert deig kemur á prjóninn þegar stungið er í kökuna. Njótið! Ykkar Stína á Nesan
10 April 2025
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK