
Airfryer eldun
10.12.2022 Airfryer eldun, er frábær listi yfir helstu eldunaratriði í Airfryer eða Lofti eins og ég kalla hann. Hérna gefur að sjá grunnhita og tíma sem þarf til að elda í AirFryer.
10 April 2025

ER VORIÐ KOMIÐ?
10.03.2025 Þó ég vilji trúa því þá er það nú líklega ekki málið, það eru þó komin brum á tréin og krókusarnir eru að koma uppúr grasinu. Síðasta helgi var algjör vorhelgi með garðvinnu hjá okkur öllum nágrönnunum, allir úti að klippa tré og hreinsa og laga til. Ég fékk lánaðar þessar svakalegu hekkklippur hjá Lars og get varla lyft hendinni núna fyrir harðsperrum, Þráinn gerði ekkert nema hita pottinn, spúla pallinn og grilla því hann fór í öxlinni í vinnu á föstudaginn og var bara að hugsa um að reyna að ná sér, svo ég var í heavy vinnunni eða þannig. Ég er orðinn svo mikill aumingi með aldrinum að ég nánast skammast mín, ég sem hef alltaf verið svo handsterk er það bara alls ekki lengur. En ég geri þetta bara samt því það þarf og sit svo með hálfmáttlausan handlegg af harðsperrum núna, en það hefur aldrei drepið nokkurn mann og jafnar sig fyrr en varir. En já þetta með vorið, ég er nefnilega búin að vera svo glöð yfir birtunni sem er komin kl. 6.30 á morgnanna og er fram til kl. 19 á
10 April 2025

ÞORRABLÓT
10.02.2025 Einu sinni á ári, hittumst við íslendingarnir í Suður Noregi og blótum þorrann og borðum góðan íslenskan mat saman, syngjum og dönsum eins og enginn sé morgundagurinn. Alltaf jafn gaman og dásamlegt fólk sem er í stjórninni og vinnur svo sjúklega vel fyrir okkur hin. Við höfum lagt það í vana okkar að vera á hóteli og taka bara góðan kósí sólarhring í kringum blótið og núna var engin undantekning á því og vorum við nokkur saman á Radisson Blue í Kristiansand. Við ákváðum að hittast uppí skybar áður en við færum á blótið og þegar við Þráinn erum í lyftunni, þá verður mér litið í spegilinn þar og varð eitthvað svo óánægð með hárið á mér sem veldur því að maðurinn minn til rúmlega 40 ára tekur utanum mig og segir mér að ég sé falleg og kyssir mig…… og á því mómenti opnast lyftan á annarri hæð og fyrir utan lyftuna stendur heilt fótboltalið sem starir inní lyftu og á okkur og segja svo: “eruði að kela í lyftunni?” og við bara úps vandræðalegt en bara fyndið. Svo er lyftan stopp
10 April 2025

LÍNUDANSARINN
28.01.2025 Ég heyrði viðtal í morgun við Hörð Torfason sem vakti hjá mér alls konar minningar, ég reyndar man ekki eftir mér öðruvísi en hann hafi verið búinn að opinbera sig og lenda í hremmingum þess vegna en það er annað sem þetta viðtal vakti upp hjá mér og það er að með aldrinum er ég farin að gleyma textum sem ég einu sinni kunni alveg. Hvort það sé vegna þess að ég hlusta ekki eins mikið á tónlist og ég gerði ( já örugglega ) eða aldurinn ( já örugglega líka ) þá alla vega minntist ég uppáhaldsplötunnar minnar með Herði og fór að hlusta á hana í morgun og já í morgun var ég komin á fætur kl. 4.45 af því ég vaknaði uppúr kl. 3 og náði ekki að sofna svo ég keyrði Þráni bara í vinnu og fór sjálf eldsnemma. Svo núna er ég búin að vera vakandi í nokkra tíma þegar þið eruð að skríða á fætur. Allt í góðu með það, ég legg mig bara á eftir eins og ég er vön. En aftur að Herði og uppáhaldsplötunni en hún heitir Hugflæði sem er náttúrulega alveg óstjórnlega fallegt orð. Og það að Hörður sé
10 April 2025

KONAN SEM KYNDIR OFNINN MINN
11. 01. 2025. Ég finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn, með eldhúslampann sinn og veit að það er konan sem kyndir ofninn minn. Ég fæ þetta lag á heilann á hverjum morgni núna, þegar frostið fer niður í -16 og það er kalt þegar ég kem niður. Þráinn sefur svo þetta verður hans upplifun þegar hann vaknar. Þe. það er kona sem kyndir ofninn hans. Þetta er reyndar eitt fallegasta lag í heimi og ekki slæmt að fá það á heilann af og til. Ég held meira að segja að þetta sé eitt af þeim lögum þar sem ég hef ekki gleymt neinu úr textanum en ég er farin að gleyma textum alveg svakalega mikið, syng líka minna svo það skýrir eitthvað en mér finnst þetta svo leiðinlegt því einu sinni kunni ég alla texta. Kannski ég ætti að bæta því við á hobbý listann minn að fara að syngja meira markvist, finna lög og texta og rifja upp. Gæti verið gott fyrir heilann líka. Jeminn, ég er bara farin að hugsa um eigin velferð á öllum sviðum, hvar endar þetta? 62 og bara allt í einu komin með lífið á hreint, h
10 April 2025

NÝTT ÁR
Já nú er bara komið nýtt ár, árið 2025 og við höfum kvatt það gamla sem var sko viðburðarríkt hjá okkur þó við getum ekki stælt okkur af mörgum utanlandsferðunum en þar sem ég er “tré” þá verða þær sjálfsagt aldrei hvort eð er, margar. Ég elska lífið okkar á Nesan og að taka á móti gestum þar og gera alls konar með þeim. Hvernig þetta ár verður, veit nú enginn en við ætlum ekki að framkvæma eins mikið á þessu ári eins og í fyrra, heldur bara æfa okkur enn meira að sigla BRAVO um eyjarnar við Mandal, njóta SLOTTSINS og borða hollara og hreyfa mig meira. Já já þetta eru auðvitað árlegar óskir þe. matur og hreyfing en ég held ég sé kannski betur innstillt á það núna, þe. þegar snjórinn fer, fer ég að hreyfa mig ha ha alltaf hægt að finna afsakanir en ég meina þetta núna. Ég gleymdi alveg að segja ykkur frá því í fyrra að Mirra og Helge fengu sér hvolp sem er auðvitað sætasti hvolpur í heimi eins og sjá má á þessum myndum. Og það er auðvitað alltaf meira líf þegar eitthvað ungviði kemur í
10 April 2025
