
Kryddlegin lúða í forrétt
Kryddlegin lúða er einn besti forréttur sem hægt er að bjóða upp á. Fiskurinn matreiðist í sítrónu- og edikilegi og verður unaðslega bragðgóður. Snilldin er að hann er útbúinn daginn áður og látinn bíða í ísskáp. Svo er auðvitað líka hægt að útbúa eftirréttinn daginn áður líka. Þá er svo einfalt að útbúa aðalréttinn samdægurs en hann er yfirleitt mesta fyrirhöfin og þarf oftast að vera heitur. 500 g smálúðuflök, má vera ýsa eða þorskur en lúðan er best safi úr 2 sítrónum 1 msk. sjávarsalt 1 msk. sykur Skerið fiskinn í litla teninga. Blandið sítrónusafa, salti og sykri saman og hærið. Leggið fiskinn í löginn og látið standi í ísskáp yfir nótt eða í 8- 10 klst. Kryddlögur: 4 tómatar 1 græn paprika 10 svartar ólífur, niðursneiddar 4 msk. matarolía 2 msk. hvítvínsedik (hvítt balsamedik) 4-5 dropar tabasco sósa 1 tsk. origano, þurrkað 2 msk. söxuð, fersk steinselja. Blandið öllu saman í skál. Látið sítrónulöginn leka af fiskinum og setjið hann út í kryddlöginn og þá er rétturinn tilbúinn! G
9 June 2026

Laksesalat på rugbrød
Har du en liten rest av laks eller ørret etter middagen som du ikke har hjerte til å kaste? Lag en deilig salat og server på rugbrød. Eller bruk den som fyll i et saftig sandwich til lunsj neste dag. Ingredienser ca 200 g kald kokt laks 0,25 stk. agurk 0,5 stk. rødløk 2 ss majones 1 ss crème fraîche orginal, 35 % rømme eller gresk yoghurt 0,25 ts kajennepepper 1 ss sitronsaft 2 kvister frisk dill 4 skiver grovt rugbrød Slik gjør du Mos den kokte laksen grovt med gaffel. Finhakk agurk og løk og bland det sammen med majoner og crème fraîche. Smak til med kajenne, salt, pepper og sitronsaft. Rist rugbrødskivene og del dem i to på skrå. Topp med lakseblandingen og pynt med dill og litt majones. Her er alle mengder omtrentlige, og du kan godt sjonglere ingrediensene med det du har for hånden. Du kan også bruke kald, hvit fisk som for eksempel kveite eller torsk, eller varmrøkt laks eller ørret.
7 June 2026

Ofnsteiktur þorskur með grænkálssalati og gulrótum
Takið þorskinn og kryddið að eigin vali og setjið í airfryer...
2 June 2026

Brokkolísalat
Brokkolísalatið er gott með öllu og eins eitt og sér, það er eitthvað sjarmerandi að borða salat sem er svona krönsí og stökkt.
24 May 2026

Chili lax
með Pasta Carbonara, einfaldur og góður réttur.
23 May 2026

Þorskur with smashed potatoes og grænmeti með kikerter
Já ég kom sjálfri mér á óvart enn einn daginn, er reyndar búin að vera að horfa á norska matreiðsluþætti en að sjálfsögðu er þetta ekkert sem kom fram þar, en ég fékk hugmynd....... já há hugmynd að nýjum fiskrétti og eins og svo oft áður og eins og kom fram í þessum þáttum þá er svo mikilvægt að nota öll skilningarvitin, lykt, sjón, og bragð. Það er auðvitað staðreynd að fallegur matur smakkast betur. Sama með lykt, ef matur lyktar illa eins og til dæmis kæstur hákarl, þá smakkast það ekki vel. En jú jú kannski ef þú drekkur brennivín með. Alla vega þessi réttur er jafn góður og hann lítur út fyrir að vera. Og já...... ég er nánast bara búin að elda fisk alla þessa viku. En um helgina fáum við góða gesti og þá ætlar Þráinn að elda og dekra okkur nokkrar vinkonur saman. Það verður geggjað því hann kann sko alveg að elda þó hann deili því ekki.
22 May 2026
