
FÖSTUDAGSBAKKINN
Já hvað skyldi það nú vera? Jú, þar sem ég er að taka út hveiti og sykur þá verður ekki lengur pizza á föstudögum. Kannski seinna og þá glútenfrí en akkúrat núna er best að sleppa henni svo það kalli ekki á meira hveitiát hjá mér. En já aftur að föstudagsbakkanum þá er það í rauninni alls konar fingramatur sem er innan hollustunnar sem ég er að temja mér núna og skiptir þá miklu máli að nota hugmyndaflugið til að gera þetta meira aðlaðandi og skemmtilegt að borða. Síðasta föstudag (var ekki búin að ákveða matarblogg og myndatökur þá) var ég með rúgbrauð með reyktum laxi og kartöflusalati ofaná, parmaskinka, hrökkbrauð, ostur og paprika niðurskorin. Allt smakkaðist æðislega og bara svo gaman að borða þetta. Jú jú haldiði að ég hafi ekki fundið mynd. Auðvitað tók ég mynd af þessum bakka, ég var svo ánægð með hann. En föstudagsbakkinn í kvöld verður ekki alveg eins en kannski svipaður, nema ég ætla að prófa í fyrsta sinn Avókadó stangir sem eru í rauninni bara maukað gamalt avókadó, egg o
7 May 2026

INNBAKAÐUR KJÚLLI
Ég tók 2 kjúklingabringur og skar þær í tvennt og barði sundur og saman, eða þannig. Kryddaði þær svo með salt og pipar. Skar þá 2 kartöflur í sneiðar og setti á olíusmurðan álpappír. Lagði þá kjúklingabringu ofaná kartöflurnar og skar niður lauk og raspaði gulrætur og mýkti á pönnu. Setti það svo ofaná kjúklinginn og lettrømme sem er einhvers konar sýrður rjómi á Íslandi og svo setti hann fullt af rifnum osti yfir allt og lokaði svo álpappírnum og bakaði í Airfryer á 180° í 35 mín. Hefði getað verið aðeins styttra, ég myndi giska á frá 25 til 35 mín eftir stærð. Ég bjó svo til æðislegt salat með úr káli, rauðlauk, gúrkum og maís og pínulítinn fetaost með. Algjörlega frábær máltíð sem ég hiklaust mæli með. Þangað til næst, ykkar Kristin á Nesan.
6 May 2026

FIMMTUDAGSSÚPAN
Ég fann geggjaða uppskrift af einfaldri og hollri súpu sem ég ætla að kalla fimmtudagssúpan.
5 May 2026

FISKUR Í FORMI
Það er eitt sem getur verið dáldið erfitt fyrir mig þegar ég er að taka mig á í mataræðinu og það er að ætla að fara eftir ákveðnum uppskriftum, ég get það í smá tíma en svo kemur bara að því að ég verð að fá frelsi til að vera kreativ í eldhúsinu en ég er samt búin að læra dáldið og get núna verið kreatív á hollan máta. Ef þið hafið ekki lesið eða séð hjá mér, þá er ég að reyna að taka út hveiti og sykur úr matnum mínum en sykurinn hef ég nánast ekki borðað í 3 ár (nema með undantekninum, ekki dagsdaglega alla vega) en ég var bara að uppgötva þetta með hveitið í desember og að ég er líklega með áunnið glútenóþol þar sem ég hef verið fíkill í flögur, hvítt brauð og alls konar óhollustu. Hvorki borðað flögur né brauð í meira en mánuð og liðverkirnir eru næstum horfnir og óþægindi í vélinda orðin miklu minni, svo ég verð stanslaust að vera að minna mig á það þegar ég sé einhvern í TV borða pizzu eða pylsu í brauði eða hreinlega hvítt ristað brauð með smjöri og osti sem er það besta í hei
4 May 2026

ÞORSKUR MEÐ PESTÓ KARTÖFLUSALATI
Ég fékk að gjöf frá Þráni um daginn, risastóra matreiðslubók með eingöngu kartöfluuppskriftum og jeminn það sem ég varð hamingjusöm að fletta henni. Nú er ég búin að prófa 2 rétti annað er kartöflu- og blómkálsmús og hitt er pestó kartöflusalat. Ég ákvað að vera með ofnbakaðan fisk með þessu kartöflusalati og það var sko aldeilis rétt ákvörðun því þetta passaði svo sjúklega vel saman.
3 May 2026

KARRÍ- KÓKOSKJÚKLINGUR
Geggjaður réttur sem ég gerði í gær, karrí kókóskjúklingur vil ég kalla hann en ég hef ekki verið hrifin af karrí en ákvað að prófa núna, málið er að þegar ég sé uppskrift í bók eða á netinu þá annað hvort á ég ekki allt í hana eða mér finnst eitthvað vont eða ekki passa svo það endar alltaf með nýrri uppskrift og það er það sem gerðist í gær.
2 May 2026
