
Súrdeigsbrauð II
Ef þú átt súrdeig, þá er þetta ferlið 2svar í viku ef þú vilt baka brauð svo oft, annars bara einu sinni í viku. Ef þú bakar ekki brauð daglega þá geymum við súrinn í ísskáp, annars bara á eldhúsborðinu. Daginn áður en brauðið er bakað, þarf að fæða súrinn. Takið ca. 180 gr af súrnum og setjið í hreina glerkrukku og blandið ofangreindum *hráefnum varlega saman við með sleif og lokið krukkunni ( lok með götum ). Hendið restinni af súrnum ! Brauðsúr – Uppskrift 60 gr. Vatn ( 26-29°C ) 30 gr. Siktet Speltmel 30 gr. Sammalt Rugmel Fordeig lagað fyrir bakstur Eftirfarandi uppskrift er blandað saman daginn áður en búa á til brauð. 40 gr tilbúinn brauðsúr 100 gr vatn 26-29°C 50 gr Siktet Speltmel 50 gr Sammalt Rugmel Súrdeigsbrauð – Uppskrift (athugið ég er búin að breyta þessari uppskrift) 300 gr Vatn (ylvolgt) 120 gr Fordeig 200 gr Siktet Speltmel 200 gr Sammalt Speltmel grovmalt 100 gr Grovbakst 15 gr Flögusalt 1. Vatn, fordeig og allt mjöl er unnið saman í höndunum eða hrærivélaskál með k
26 November 2025

Dúnmjúkir kanilsnúðar með ekta súkkulaði
Dásamlega mjúkir snúðar sem slá alltaf í gegn og toppurinn er að bera snúðana fram með ísköldu mjólkurglasi. Innihald 1 skammtur Deig: 2 1⁄2 dl volg mjólk 2 1⁄2 tsk. þurrger 2 stk. egg við stofuhita 75 g brætt smjör, aðeins kælt 1 dl sykur 1⁄2 tsk. salt 9 dl hveiti (9-10 dl) Fylling: 2 1⁄2 dl púðursykur 2 tsk. kanill 100 g mjúkt smjör 1⁄2 tsk. salt Krem: 100 g suðusúkkulaði 4 msk. smjör 2 msk. síróp 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. uppáhelt kaffi 1⁄4 tsk. salt 2 dl flórsykur 2 msk. heitt vatn (2-3 msk.) Skref 1 Hitið mjólkina þannig að hún verði vel volg, um 40 gráður. Hellið í skál, pískið sykurinn saman við þar til hann leysist upp og stráið svo þurrgerinu yfir. Leyfið þessu að standa í 10 mínútur. Bætið þá bræddu smjörinu og eggjunum saman við og pískið saman. Bætið hveitinu, ásamt saltinu, smám saman út í blönduna (ég nota til þess deigkrókinn á hrærivélinni, líka hægt að nota sleif). Hrærið vel saman þar til deigið er komið vel saman en ennþá dálítið blautt. Hnoðið svo saman þar til þi
26 November 2025

Kanilsnúðakaka
Ef þér finnst snúðar og kanilsnúðar góðir þá er þessi kaka fullkomin fyrir þig. Hér er uppskrift að dásamlegri kanilsnúðaköku. Það tekur enga stund að gera hana og hún er mjúk og ljúffeng – frábær með kaffi eða mjólk. Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheitsem deilir hér með okkur þessari uppskrift að kanilsnúðaköku. Það sem þarf 175 gr smjör 2 ½ dl sykur 2 egg 3 dl sýrður rjómi eða súrmjólk 4 ½ dl hveiti 2 tsk vanillusykur 1 msk lyftiduft smá salt Fylling 1 dl sykur 3 msk kanil Yfir kökuna 2 msk smjör Aðferð Hitið ofninn í 175°. Hrærið smjör og sykur mjúkt og ljóst. Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og þar á eftir sýrða rjómanum. Bætið þurrefnunum saman við og hrærið vel saman. Blandið sykri og kanil í fyllinguna saman í annarri skál. Smyrjið formkökuform. Látið helminginn af deiginu í formið, stráið helmingnum af fyllingunni yfir, látið seinni helminginn af deiginu yfir og endið á að strá restinni af fyllingunni yfir kökuna. Leggið smjörklípur yfir kökuna og bakið í ofni í 45-
25 November 2025

Þegar ljósmynd verður að plakati
Eins og þið líklega vitið öll, þá eru öll plakötin mín sem ég hef verið að búa til og er að selja á www.mirra.no gerð uppúr ljósmyndum frá mér. Hvort sem er landslagsmyndum eða portrait. Nýjasta verkefnið mitt er Ajax og Spákonan og eru þau plaköt unnin uppúr myndum af henni Maddý heitinni tengdamömmu. Og þegar ég var að leita að þessum myndum til að vinna með, þá fékk svo mikinn söknuð til hennar sem gat verið svo skemmtileg og alltaf til í að leika með mér þegar hún var hérna úti í heimsókn hjá okkur. Verst að hún kom aldrei síðustu árin sín, þó heilsan hefði alveg boðið uppá það, þar til alveg í restina. Þegar ég heimsótti hana á Íslandi þá saknaði ég hennar á sama tíma, því hún var ekki þessi skemmtilega kona sem hún var alltaf þegar hún var hérna úti hjá okkur. Hún vissi allt um okkur, um alla staði hérna í kring og þekkti alla sem við þekktum. Og ekki minnst var svo mikið til í að leika sér með okkur alltaf. En það er gott að geta rifjað upp þessar góðu stundir og nú er ég búin a
21 November 2025

Súrdeigsbrauð frá grunni
Uppskrift frá Kornax hveiti en ég er búin að skipta út íslenskum hveititegundum í norskar. Súrdeigsbakstur í heimahúsum hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og margir farnir að spreyta sig við að laga súr og baka úr honum allskyns brauð. Ferlið við súrdeigsbakstur getur virst flókið og krefst fyrirhafnar. Því höfum við tekið saman myndband sem sýnir á einfaldan hátt hvernig ferlið er frá því að súrinn er lagaður þartil fyrsta súrdeigsbrauðið er tekið úr ofninum. Vonandi nýtist það einhverjum við fyrstu skref súrdeigsbaksturs. Aðferð Brauðsúr – Grunnur Það tekur yfirleitt 7-10 daga að gerja brauðsúr frá grunni þannig að hægt sé að nota hann með góðu móti í brauðabakstur. Þú þarft að eiga ca. tvær glerkrukkur 300-500 ml með loki sem búið er að gata þannig að vel fari um súrinn í þroskaferlinu. Brauðsúr – Uppskrift 60 gr. Vatn ( 26-29°C ) 30 gr. Siktet Speltmel 30 gr. Sammalt Rugmel Dagur 1 Blandið ofangreindum *hráefnum með sleif í glerkrukku og setjið lokið á ( með loftgötum ), og lá
17 November 2025

Hafraklattar með döðlum
250 gr sykur 200 gr púðursykur 250 gr smjör við stofuhita 4 egg 300 gr hveiti 1 tsk lyftiduft 2 tsk kanill 1 tsk salt 470 gr Til hamingju gróft haframjöl 50 gr Til hamingju gróft kókosmjöl 100 gr Til hamingju saxaðar döðlur Sykur (báðar tegundir) og smjör hrært saman í hrærivél þar til létt og ljóst. Eggin sett út í, eitt í einu og skafið niður á milli. Því næst er restinni af þurrefnunum blandað saman við og hrært rólega þar til vel blandað. Að lokum er haframjöli, kókosmjöli og döðlum bætt útí og hrært saman við með sleif. Ofninn hitaður 180°C og kúlur mótaðar úr góðri matskeið og þrýst létt ofan á hverja, raðað á bökunarplötu og bakað í 15-20 mínútúr (bakið minna ef þið viljið seigari, meira fyrir stökkari). Uppskriftin gefur um 50 stk og dásamlegt að eiga þær í frysti til að stinga í nestisboxið.
17 November 2025
