NET.jpg?etag=%224eeff3-68bd2d72%22&rotate=0)
Eftir rigningarnar
Það er búið að rigna talsvert mikið síðustu viku sem sést svo sannarlega á ánni okkar, sem hefur flætt yfir tún og bakka, eins og sjá má á þessum myndum sem ég tók á föstudaginn. Ég sá samt strax í gær að það hafði sjatlað í henni svo við höfum engar áhyggjur strax en það styttist í október og það var í október 2017 sem flóðið mikla varð hérna hjá okkur. Og þó það sé búið að vera sól og yfir 20 stiga hiti um helgina þá spáir rigningu aftur á þriðjudaginn og alla næstu viku svo það verður spennandi að sjá hvað gerist þá. En hérna eru myndir frá því á föstudaginn 5. sept. 2025. Njótið! Fyrsta myndin er tekin í Mandal af bryggjunni sem Bravo liggur við, ég varð bara að fara og skoða hvernig lítur út þar, þegar svona mikið er í ánni. Það væsti ekki um Bravo en það var allt fullt af trjám fljótandi niður ána og búin að festa sig við bryggjuna og liggjandi utaní bátum þarna, ég lét nú hafnarstjóra vita af þessu til að þeir gætu sent mannskap að hreinsa til í kringum bátana. Á leiðinni frá Ma
7 September 2025

Að liggja eitthvað á hjarta
eða ekki! Mér fannst ég bara verða að fara að blogga aftur en veit í rauninni ekki alveg hvað ég ætti að blogga um í dag. Ég er búin að vera mjög löt að blogga í allt sumar, en það er nú normalt fyrir mig, ég blogga bara í tölvunni og eins og þetta sumar er búið að vera þá hef ég setið úti í Slotti ef ég hef ekki verið á ferðalagi. En nú er búið að rigna í 4 daga og þá er meira setið inni. Ég er búin að vera rosalega dugleg að labba í síðustu viku en ég kem mér bara ekki að því að labba í súld eða rigningu, en þarf að læra að koma hugarfarinu þangað. Það tekst og vonandi fljótlega. En ég er einnig búin að vera dugleg að taka myndir, núna síðustu vikurnar en alls ekki í allt sumar, ég hreinlega hélt ég væri búin að tapa neistanum en nei nei, svo er nú ekki og greinilegt að stundum þarf maður að hvíla sig og líka á því sem er skemmtilegast. En sumarið er búið að vera geggjað, ég byrjaði á að fara til Íslands og eyða tíma mest með Konný systur en einnig hitti ég öll systkinin mín og við v
2 September 2025

Í mosaskóginum eins og ég kalla hann.
Þegar við löbbum hérna uppá fjall eða til Marli þá löbbum við í gegnum mosaskóginn á leiðinni niður hinum megin, ég elska að vera þarna og taka macro myndir og bara hlusta á ekkert og sjá hvað náttúran er mögnuð. Reyndar brest ég alltaf í söng þegar ég er þarna og eru það til skiptist tvö lög sem ég syng, fyrra er lagið Álfar eftir Magnús Þór og seinna er lagið um Benedikt búálf en bæði fjalla þau um álfa og ævintýri og þannig upplifi ég þennan skóg. Þessar drekaflugur fá að fljóta með, þó þær eigi heima í garðinum mínum en ekki uppá fjalli í mosaskóginum. Ég er búin að vera að reyna að mynda eina rosalega stóra drekaflugu með rauðan hala en ekki náð henni, hún hverfur alltaf þegar ég kem út mynd stóru linsuna á myndavélinni. Og nú er hæpið að ég nái henni því það spáir ekki meira 20 stigum og glampandi sól með raka, en það eru kjöraðstæður fyrir drekaflugurnar. Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna
1 September 2025

Villiblómin
Eftir að hafa verið að mynda í bílakirkjugarði og bak við verksmiðjur, þá lá leiðin heim og þegar ég kom að ánni okkar, þá var auðvelt að líta bara niður og taka myndir af þessum fallegu villtu blómum hérna allt í kring. Þangað til næst, ykkar Kristin Jóna
31 August 2025

Göngutúr í iðnaðarhverfinu
Það getur verið ótrúlega gaman að rölta um í iðnaðarhverfum sérstaklega ef það er bílakirkjugarður og eitthvað gamalt og ryðgað að sjá. Ég tók svoleiðis túr um daginn, fór samferða Þráni í vinnu og rölti um allt í kringum verksmiðjuna þar sem hann vinnur. Fékk meira að segja að fara bakvið hjá bílapartasölunni og mynda þar.
31 August 2025

Göngutúr að Nome vatninu
Já sæll, við erum búin að búa í 8 ár hérna og jú ætluðum einu sinni að fara að þessu vatni en þá var svona bom fyrir og við þorðum ekki að fara lengra því við héldum að þetta væri prívat. En núna í síðustu viku fann ég nýtt app sem notar location til að benda mér á gönguleiðir í nágrenninu og þetta var einn af þeirra túrum svo í dag skelltum við hjónin okkur í þessa göngu og þvílíkt sem það er fallegt þarna. Ég tók mér nú orð afa mín í munn og sagði: "Ég sé nú ekki eftir að hafa komið hingað". Fer aftur um leið og rigningartímabilið sem spáð er næstu viku er búið og ég ætla ein því ég þarf að taka fullt af alls konar myndum og líka öðruvísi, en ég tók samt fullt af myndum í dag. Þarna er svo svona gapahytta eins og norðmenn kalla það, opið lítið veiðihús, strönd, hitamælir í vatninu, grill og borð og bekkir og og og, geggjaður staður fyrir fjölskylduna og ekki verra að það eru ca. 5 km að labba fram og til baka svo við fáum líka eitthvað út úr göngutúrnum.
27 August 2025
