
Now I am walking...
Já eftir siglinguna ákváðum við hjónin að skella okkur í göngutúr í Mandal, byrjuðum á að labba að Ulsevika og svo tókum við smá krók og kíktum á nokkur iðnarðarhús og með þær myndir lék ég mér aðeins, nokkar í lit, nokkrar svarthvítar í Holga stíl og loks nokkrar svarthvítar með einum lit í, alltaf gaman að leika sér.
27 August 2025

I am sailing
I am sailing.... Auðvitað dettur mér þetta lag alltaf í hug þegar við siglum niður ána í Mandal, þar sem það er eitthvað svo stórfenglegt að sigla í gegnum miðbæinn og sjá hann frá öðru sjónarhorni. Við skelltum okkur í siglingu á sunnudaginn en það var heldur mikil undiralda fyrir minn smekk, þó ég hefði verið búin að athuga vindstigin en þetta er eitthvað sem við þurfum að læra betur á. Vindur 3 metrar getur þýtt háar öldur og undiröldu eins og var þarna. En að sjálfsögðu var dásamlega fallegt og yndislegt að sigla um eyjarnar.
26 August 2025

🐾 Froskurinn, hvolpurinn Litla og hjartað
Gimlekollen – 26. júlí 2025 Það var heitt og rakt á Gimlekollen í dag. Loftið umlukti okkur eins og djúpt andvarp náttúrunnar – með gróðurangan, svita í hálsakoti og glitrandi yfirborði á litlu vatni, kyrru og speglandi. Við fórum í göngutúr með Ástrós Mirru, Helge og Litlu um þeirra dásamlega nærumhverfi, Litla var svo glöð og forvitin, endalaust tilbúin að uppgötva heiminn. Og þá – eins og úr annarri vídd – birtist hann. Lítill brúnn froskur. Hann kom stökkvandi úr rakanum og lenti beint fyrir framan okkur. Staldraði við í sekúndubrot. Þreifaði á veruleikanum með skininu og augunum sínum – og stökk svo aftur, hærra og hraðar en ég hefði haldið að væri mögulegt fyrir svona lítinn líkama. Hvolpurinn skynjaði hann strax. Einn þeirra skoppaði á móti honum, ekki af árás, heldur af gleði. Með eyrun á hreyfingu og rófuna titrandi reyndi hann að bjóða honum í leik. En froskurinn þekkti ekki tungumál sakleysis. Við drógum hvolpinn rólega til baka. Ekki af hörku, heldur með hug á vernd – bæði
29 July 2025

Sumarfrí 2025 - Flensborg í Þýskalandi
Stefanía og Smári fóru með okkur í dagsferð til Þýskalands sem var að sjálfsögðu upplifun út af fyrir sig, skrítið að búa svona nálægt landamærum að það taki bara 10 mín að skjótast yfir. Næst ætlum við að stoppa lengur hjá þessum kastala og njóta enn betur því þar er svo óstjórnlega fallegt.
21 July 2025

Sumarfrí 2025 - Köben
Útsýnið frá hostelinu okkar, já við vorum á hostel en ekki hóteli, Kristín Jóna tók ekkert eftir því bara að það væru svalir og í miðbænum. Skoða betur næst, því hostel er ekkert fyrir fólk yfir 60 ára. Svo tókum við túristan á Köben, keyptum okkur miða á hopp on - hopp off en þar sem það voru svo mörg skemmtiferðaskip þá var illmögulegt að fá pláss í bílunum og bílstjórarnir orðin alveg gal og farnir að öskra á ferðamennina.
21 July 2025

Sumarfrí 2025 - Kristjanía í Köben
Við hjónin skruppum saman til Danmerkur eftir Íslandsferðina mína og hér gefur að líta nokkrar myndir teknar í þeirri ferð. Við fórum til Kaupmannahafnar og vorum þar eina helgi, byrjuðum á að labba um í Kristjaníu, það var gaman að rölta þar um og skoða bæði hvernig fólkið lifir þar og eins það sem fólkið er að gera á svo listrænan hátt svo margt. Þarna sannaðist máltækið að eins manns rusl er annars manns dýrgripur.
21 July 2025
