BLOG
Göngutúr að Nome vatninu
Já sæll, við erum búin að búa í 8 ár hérna og jú ætluðum einu sinni að fara að þessu vatni en þá var svona bom fyrir og við þorðum ekki að fara lengra því við héldum að þetta væri prívat. En núna í síðustu viku fann ég nýtt app sem notar location til að benda mér á gönguleiðir í nágrenninu og þetta var einn af þeirra túrum svo í dag skelltum við hjónin okkur í þessa göngu og þvílíkt sem það er fallegt þarna. Ég tók mér nú orð afa mín í munn og sagði: "Ég sé nú ekki eftir að hafa komið hingað". Fer aftur um leið og rigningartímabilið sem spáð er næstu viku er búið og ég ætla ein því ég þarf að taka fullt af alls konar myndum og líka öðruvísi, en ég tók samt fullt af myndum í dag. Þarna er svo svona gapahytta eins og norðmenn kalla það, opið lítið veiðihús, strönd, hitamælir í vatninu, grill og borð og bekkir og og og, geggjaður staður fyrir fjölskylduna og ekki verra að það eru ca. 5 km að labba fram og til baka svo við fáum líka eitthvað út úr göngutúrnum.
27 August 2025
Now I am walking...
Já eftir siglinguna ákváðum við hjónin að skella okkur í göngutúr í Mandal, byrjuðum á að labba að Ulsevika og svo tókum við smá krók og kíktum á nokkur iðnarðarhús og með þær myndir lék ég mér aðeins, nokkar í lit, nokkrar svarthvítar í Holga stíl og loks nokkrar svarthvítar með einum lit í, alltaf gaman að leika sér.
27 August 2025
I am sailing
I am sailing.... Auðvitað dettur mér þetta lag alltaf í hug þegar við siglum niður ána í Mandal, þar sem það er eitthvað svo stórfenglegt að sigla í gegnum miðbæinn og sjá hann frá öðru sjónarhorni. Við skelltum okkur í siglingu á sunnudaginn en það var heldur mikil undiralda fyrir minn smekk, þó ég hefði verið búin að athuga vindstigin en þetta er eitthvað sem við þurfum að læra betur á. Vindur 3 metrar getur þýtt háar öldur og undiröldu eins og var þarna. En að sjálfsögðu var dásamlega fallegt og yndislegt að sigla um eyjarnar.
26 August 2025
Sumarfrí 2025 - Flensborg í Þýskalandi
Stefanía og Smári fóru með okkur í dagsferð til Þýskalands sem var að sjálfsögðu upplifun út af fyrir sig, skrítið að búa svona nálægt landamærum að það taki bara 10 mín að skjótast yfir. Næst ætlum við að stoppa lengur hjá þessum kastala og njóta enn betur því þar er svo óstjórnlega fallegt.
21 July 2025
Sumarfrí 2025 - Köben
Útsýnið frá hostelinu okkar, já við vorum á hostel en ekki hóteli, Kristín Jóna tók ekkert eftir því bara að það væru svalir og í miðbænum. Skoða betur næst, því hostel er ekkert fyrir fólk yfir 60 ára. Svo tókum við túristan á Köben, keyptum okkur miða á hopp on - hopp off en þar sem það voru svo mörg skemmtiferðaskip þá var illmögulegt að fá pláss í bílunum og bílstjórarnir orðin alveg gal og farnir að öskra á ferðamennina.
21 July 2025
Sumarfrí 2025 - Kristjanía í Köben
Við hjónin skruppum saman til Danmerkur eftir Íslandsferðina mína og hér gefur að líta nokkrar myndir teknar í þeirri ferð. Við fórum til Kaupmannahafnar og vorum þar eina helgi, byrjuðum á að labba um í Kristjaníu, það var gaman að rölta þar um og skoða bæði hvernig fólkið lifir þar og eins það sem fólkið er að gera á svo listrænan hátt svo margt. Þarna sannaðist máltækið að eins manns rusl er annars manns dýrgripur.
21 July 2025
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK