BLOG
Mamma!
Mamma, ertu vakandi mamma mín...... Ég fann þessar dásamlegu myndir af mömmu og jú jú nokkrar með Sigga sínum. Mikið sem ég sakna þín alltaf og langar svo oft að hringja og spjalla en í staðinn verð ég að láta mér nægja að skoða myndir af þér og rifja upp góðar stundir.
16 September 2025
Gengið um Mandal
Göngutúr helgarinnar var inní Mandal sentrum, allt of langt síðan við hjónin höfum rölt þarna um og rifjað upp gamla tíma, frá því við bjuggum þarna. Fengum okkur að sjálfsögðu ís, í uppáhalds sjoppunni okkar sem opnar þegar farfuglarnari koma og lokar þegar þeir fljúga burt. Að sjálfsögðu eru myndirnar teknar með Fujifilm myndavélinni minni og Lensbaby Sol45 linsu, sem er uppáhaldslinsan mín.
11 September 2025
Eftir rigningarnar
Það er búið að rigna talsvert mikið síðustu viku sem sést svo sannarlega á ánni okkar, sem hefur flætt yfir tún og bakka, eins og sjá má á þessum myndum sem ég tók á föstudaginn. Ég sá samt strax í gær að það hafði sjatlað í henni svo við höfum engar áhyggjur strax en það styttist í október og það var í október 2017 sem flóðið mikla varð hérna hjá okkur. Og þó það sé búið að vera sól og yfir 20 stiga hiti um helgina þá spáir rigningu aftur á þriðjudaginn og alla næstu viku svo það verður spennandi að sjá hvað gerist þá. En hérna eru myndir frá því á föstudaginn 5. sept. 2025. Njótið! Fyrsta myndin er tekin í Mandal af bryggjunni sem Bravo liggur við, ég varð bara að fara og skoða hvernig lítur út þar, þegar svona mikið er í ánni. Það væsti ekki um Bravo en það var allt fullt af trjám fljótandi niður ána og búin að festa sig við bryggjuna og liggjandi utaní bátum þarna, ég lét nú hafnarstjóra vita af þessu til að þeir gætu sent mannskap að hreinsa til í kringum bátana. Á leiðinni frá Ma
7 September 2025
Í mosaskóginum eins og ég kalla hann.
Þegar við löbbum hérna uppá fjall eða til Marli þá löbbum við í gegnum mosaskóginn á leiðinni niður hinum megin, ég elska að vera þarna og taka macro myndir og bara hlusta á ekkert og sjá hvað náttúran er mögnuð. Reyndar brest ég alltaf í söng þegar ég er þarna og eru það til skiptist tvö lög sem ég syng, fyrra er lagið Álfar eftir Magnús Þór og seinna er lagið um Benedikt búálf en bæði fjalla þau um álfa og ævintýri og þannig upplifi ég þennan skóg. Þessar drekaflugur fá að fljóta með, þó þær eigi heima í garðinum mínum en ekki uppá fjalli í mosaskóginum. Ég er búin að vera að reyna að mynda eina rosalega stóra drekaflugu með rauðan hala en ekki náð henni, hún hverfur alltaf þegar ég kem út mynd stóru linsuna á myndavélinni. Og nú er hæpið að ég nái henni því það spáir ekki meira 20 stigum og glampandi sól með raka, en það eru kjöraðstæður fyrir drekaflugurnar. Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna
1 September 2025
Villiblómin
Eftir að hafa verið að mynda í bílakirkjugarði og bak við verksmiðjur, þá lá leiðin heim og þegar ég kom að ánni okkar, þá var auðvelt að líta bara niður og taka myndir af þessum fallegu villtu blómum hérna allt í kring. Þangað til næst, ykkar Kristin Jóna
31 August 2025
Göngutúr í iðnaðarhverfinu
Það getur verið ótrúlega gaman að rölta um í iðnaðarhverfum sérstaklega ef það er bílakirkjugarður og eitthvað gamalt og ryðgað að sjá. Ég tók svoleiðis túr um daginn, fór samferða Þráni í vinnu og rölti um allt í kringum verksmiðjuna þar sem hann vinnur. Fékk meira að segja að fara bakvið hjá bílapartasölunni og mynda þar.
31 August 2025
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK