
Plokkfiskur á pönnu
Ég var búin að ákveða að hafa fisk í matinn í kvöld, svo datt mér í hug að baka flatkökur og þá ákvað ég að hafa bara soðinn fisk með kartöflum og smjöri en þegar til kom, datt mér í hug ný uppskrift af plokkfisk. Plokkfiskur á pönnu, ekki með hveitisósu þar sem ég forðast hveiti en datt í hug að nota fiskisósuna frá Lofoten. Geggjað gott.
19 May 2026

Rúgbrauð
ala Kristin Jona og Gurrí
18 May 2026

Ósætt rúgbrauð
Ósætt rúgbrauð með gúrkusalati og grilluðum laxi er geggjað gott, svo hér er uppskriftin að rúgbrauðinu
17 May 2026

ÞORSKUR Í SATAY- OG KARRÍSÓSU
Jæja ég lét verða af því í gær að elda þennan rétt sem ég rakst á, um daginn. Það eru hrísgrjón í honum sem er auðvitað ekki það besta fyrir okkur, sérstaklega af því að ég átti bara hvít hrísgrjón, en þó við séum að temja okkur að borða hollt, þá viljum við ekki matarsóun og því verða þessi hrísgrjón kláruð einn daginn, bara hægar en ella. Þetta er einföld og mjög góð uppskrift sem verður elduð aftur fljótlega á þessu heimili. Og af því að við sóum ekki mat, og það var í afgang sósa og smá grænmeti, þá bætti ég bara við meira grænmeti útá pönnuna til að hafa í hádegismat daginn eftir. Njótið
16 May 2026

TACOSALAT
Ferskt og gott tacosalat
15 May 2026

BROKKOLÍSÚPA
Frábær brokkolísúpa með nýbökuðu súrdeigsbrauði er algjört æði.
14 May 2026
