BLOG
Rúgbrauð ala frú Valgerður
Þetta er stór uppskrift af rúgbrauði, sem hægt er að helminga og fékk ég leiðbeiningar frá Chat GPT um hvernig það skuli gert.
25 May 2026
Brokkolísalat
Brokkolísalatið er gott með öllu og eins eitt og sér, það er eitthvað sjarmerandi að borða salat sem er svona krönsí og stökkt.
24 May 2026
Chili lax
með Pasta Carbonara, einfaldur og góður réttur.
23 May 2026
Þorskur with smashed potatoes og grænmeti með kikerter
Já ég kom sjálfri mér á óvart enn einn daginn, er reyndar búin að vera að horfa á norska matreiðsluþætti en að sjálfsögðu er þetta ekkert sem kom fram þar, en ég fékk hugmynd....... já há hugmynd að nýjum fiskrétti og eins og svo oft áður og eins og kom fram í þessum þáttum þá er svo mikilvægt að nota öll skilningarvitin, lykt, sjón, og bragð. Það er auðvitað staðreynd að fallegur matur smakkast betur. Sama með lykt, ef matur lyktar illa eins og til dæmis kæstur hákarl, þá smakkast það ekki vel. En jú jú kannski ef þú drekkur brennivín með. Alla vega þessi réttur er jafn góður og hann lítur út fyrir að vera. Og já...... ég er nánast bara búin að elda fisk alla þessa viku. En um helgina fáum við góða gesti og þá ætlar Þráinn að elda og dekra okkur nokkrar vinkonur saman. Það verður geggjað því hann kann sko alveg að elda þó hann deili því ekki.
22 May 2026
Fiskikökur með dill kartöflum og salsa grænmeti
Við erum með hérna í Noregi svokallaðan fiskibíl sem er í raun eins og ísbíllinn nema þessi selur fisk frá Norður Noregi og við höfum aldrei fengið eins góðan fisk og hjá þeim, og ekki verra að þeir láta vita þegar þeir eru næst á ferðinni svo maður geti spáð í hvað eigi að kaupa þá. Við erum búin að prófa lúðuna, laxinn, þorskinn, þorsk í raspi og fiskikökur gerðar úr steinbít og graslauk, og ég er ekki mikil fiskibollukona og líkar almennt ekki tilbúnir fiskréttir þar sem oft er notaður lélegur fiskur í þá en þetta er sjúklega gott og að sjálfsögðu svo einfalt þar sem búið er að forelda kökurnar. Útfærslan í dag, var að nota eitthvað sem til er í ísskápnum til að gera þær fancy og mér tókst sko bara vel upp, alla vega finnst mér þetta geggjað gott og mæli með. Á morgun er grænmetissúpa því brokkolíið var orðið eitthvað tæpt. Þar sem við búum aðeins út á landi þá verslum við á viku til 10 daga fresti í stórmarki inní Mandal og oft er ég dugleg að gera matseðill og innkaupalista en hef
21 May 2026
Innbakaður lax
Fékk þessa hugmynd á fimmtudaginn, þegar ég fann óvart smjördeig í frystikistunni. Setti saman í huganum á föstudaginn og eldaði svo í gær, laugardag. Ég elska að gera eitthvað nýtt í eldhúsinu og hef reynt að vera dugleg að skrifa niður uppskriftirnar og taka myndir oþh. því hérna áður fyrr þá gleymdist oft uppskriftin manninum mínum til ama. Ég er reyndar svo heppin að honum finnst allt sem ég elda gott og ef hann er á kvöldvakt og með nesti frá mér, eitthvað sem ég eldaði daginn áður, þá hringir hann til að tjá sig um matinn sem er svo frábært því það hvetur mig til dáða. Ég er nefnilega ein af þeim sem þarf að fá hrós reglulega og sæki mér það ef ekkert tilefni hefur verið til að hrósa. En ég mæli með þessum rétti, hiklaust.
20 May 2026
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK