
Janteloven – aldrei í mínu lífi!
– pistill eftir íslenska konu í Noregi Ég flutti til Noregs með íslenska orku og bros á vör. Ég var og er mjög stolt af bakgrunni mínum, fagnaði sigrum stórum sem smáum og talaði hátt og skýrt þegar mér fannst eitthvað mikilvægt. Þannig er ég alin upp. Ég ólst upp á Íslandi þar sem stelpur jafnt sem strákar voru hvattar til að trúa á sjálfar sig. Ég man hvað ég var stolt þegar við fengum fyrstu konu í heiminum kjörna sem forseta – og svo síðar samkynhneigða konu sem forsætisráðherra. Við erum smá þjóð, en við hugsum stórt. Svo kom ég til Noregs – og uppgötvaði eitthvað ég hafði ekki séð: Janteloven. Það var ekkert verið að tala um það beint, en það var einhvern veginn alls staðar, samt. Ég sá það í skólanum hjá dóttur minni, sá mikinn mun á strákum og stelpum og þegar ég sagði stolt frá einhverju sem ég hafði gert, fékk ég köld svör eða þögn. Þegar ég hrósaði sjálfri mér eða öðrum, fannst mér andrúmsloftið breytast. Það var eins og það væri bara eitt leyfilegt hugarfar: Ekki halda að
22 April 2025

Smá breytingar
Já er ekki vorið tími breytinganna? Ég er alla vega alltaf svo uppgíruð á vorin að ég get flutt fjöll ef þannig má komast að orði. En þessar breytingar sem ég er að tala um eru nú smávægilegar þannig séð en þannig er að ég er með heimasíðuna mína hýsta hjá One.com og nú er ég er að flytja bloggið mitt frá WordPress sem er tengt við one.com yfir til þeirra, þeir voru sem sagt að bæta við sína þjónustu bloggi. Þetta nýja blogg byrjar á árinu 2025 og ég er með þessa sömu 3 flokka, privat blog, matarblog og myndablog. Fyrstu 2 eru á íslensku en ljósmyndabloggið hef ég á ensku því það er fólk sem ekki talar íslensku sem fylgir mér þar. Jú jú líka eitthvað af norðmönnum sem fylgja mér privat en íslenskan er ennþá mitt aðaltungumál og sérstaklega skrifmál svo þegar maður bloggar frá hjartanu þá notar maður tungumálið sem maður hugsar á og það er ennþá íslenskan. En gamla bloggið mitt mun lifa á hinum staðnum út árið og hér er linkur á það. Og talandi um tungumálið þá var ég er gerast meðlimur
14 April 2025

EKKI í FYRSTA SINN OG...
15.01.2025 alveg örugglega ekki í það síðasta, sem nágranni (ar) okkar segir að við séum eitthvað biluð eða “helt gale”. En það gerðist í gær þegar ég sagði Jan frá því sem við erum að gera núna í myrkrinu í janúar. Um jólin hélt tengdasonur okkar að hann hefði heyrt í mús í veggnum bak við rúmið sem þau sváfu í, ég hélt nú ekki, þetta væri alveg örugglega bara Skjórinn (fuglarnir) uppi á þaki að stússa en það heyrist ótrúlega mikið í þeim þegar þeir labba á þakinu. En þar sem tengdasonurinn hafði áhyggjur af þessu ákváðum við sem sagt að taka allt dót út úr geymslurýmunum undir þakinu, það er eitt svoleiðis í hvoru svefnherberginu og eitt í ganginum uppá lofti. Og oh my god, hvað kemur út úr þessum rýmum! Núna eru ennþá tvö herbergi full af dóti sem við höfum sankað að okkur á 8 árum í þessu húsi og því er það vel að við séum að fara í gegnum það og flokka og henda og á meðan með allt fullt af músagildrum undir súðinni, en engin mús komið í þær ennþá þrátt fyrir frosthörkur og erfið v
11 April 2025

TEMU
16.01.2025 Varúð viðkvæmt umræðuefni! Það er búið að vera svo mikil umræða um Temu bæði á Íslandi og enn meira hérna í Noregi og ég sem panta mér ódýrar vörur á Temu hef almennt bara verið ánægð með þær nema þegar ég sjálf hef gleymt að skoða stærðina á vörunni og panta eitthvað of lítið en það er í 99% tilvika mér sjálfri að kenna því ég er svo fljótfær. En umræðan snýst mest um að seljendur hérna í Noregi eru ósáttir við að þessar vörur séu tollfrjálsar og það get ég alveg skilið en það eru víst einhverjir samningar í gangi sem ekki er hægt að rifta bara svona en, to, tre. En að agnúast útí vörunar sem Temu selur er bara svo mikið bull, því við sem pöntum þar, vitum að við erum oft að panta eitthvað ódýrt djönk sem á ekki að endast lengi, en ég hef nefnilega líka pantað alls konar sem er mun vandaðra og betra en það sem ég kaupi í búðunum hér eins og HM og Coop og nú er ég að tala um nærbuxur. Ég á bara dáldið erfitt með að finna góðar nærbuxur fyrir kellingu á mínum aldri sem vill a
11 April 2025

ER VORIÐ KOMIÐ?
10.03.2025 Þó ég vilji trúa því þá er það nú líklega ekki málið, það eru þó komin brum á tréin og krókusarnir eru að koma uppúr grasinu. Síðasta helgi var algjör vorhelgi með garðvinnu hjá okkur öllum nágrönnunum, allir úti að klippa tré og hreinsa og laga til. Ég fékk lánaðar þessar svakalegu hekkklippur hjá Lars og get varla lyft hendinni núna fyrir harðsperrum, Þráinn gerði ekkert nema hita pottinn, spúla pallinn og grilla því hann fór í öxlinni í vinnu á föstudaginn og var bara að hugsa um að reyna að ná sér, svo ég var í heavy vinnunni eða þannig. Ég er orðinn svo mikill aumingi með aldrinum að ég nánast skammast mín, ég sem hef alltaf verið svo handsterk er það bara alls ekki lengur. En ég geri þetta bara samt því það þarf og sit svo með hálfmáttlausan handlegg af harðsperrum núna, en það hefur aldrei drepið nokkurn mann og jafnar sig fyrr en varir. En já þetta með vorið, ég er nefnilega búin að vera svo glöð yfir birtunni sem er komin kl. 6.30 á morgnanna og er fram til kl. 19 á
10 April 2025

ÞORRABLÓT
10.02.2025 Einu sinni á ári, hittumst við íslendingarnir í Suður Noregi og blótum þorrann og borðum góðan íslenskan mat saman, syngjum og dönsum eins og enginn sé morgundagurinn. Alltaf jafn gaman og dásamlegt fólk sem er í stjórninni og vinnur svo sjúklega vel fyrir okkur hin. Við höfum lagt það í vana okkar að vera á hóteli og taka bara góðan kósí sólarhring í kringum blótið og núna var engin undantekning á því og vorum við nokkur saman á Radisson Blue í Kristiansand. Við ákváðum að hittast uppí skybar áður en við færum á blótið og þegar við Þráinn erum í lyftunni, þá verður mér litið í spegilinn þar og varð eitthvað svo óánægð með hárið á mér sem veldur því að maðurinn minn til rúmlega 40 ára tekur utanum mig og segir mér að ég sé falleg og kyssir mig…… og á því mómenti opnast lyftan á annarri hæð og fyrir utan lyftuna stendur heilt fótboltalið sem starir inní lyftu og á okkur og segja svo: “eruði að kela í lyftunni?” og við bara úps vandræðalegt en bara fyndið. Svo er lyftan stopp
10 April 2025
