BLOG
Að liggja eitthvað á hjarta
eða ekki! Mér fannst ég bara verða að fara að blogga aftur en veit í rauninni ekki alveg hvað ég ætti að blogga um í dag. Ég er búin að vera mjög löt að blogga í allt sumar, en það er nú normalt fyrir mig, ég blogga bara í tölvunni og eins og þetta sumar er búið að vera þá hef ég setið úti í Slotti ef ég hef ekki verið á ferðalagi. En nú er búið að rigna í 4 daga og þá er meira setið inni. Ég er búin að vera rosalega dugleg að labba í síðustu viku en ég kem mér bara ekki að því að labba í súld eða rigningu, en þarf að læra að koma hugarfarinu þangað. Það tekst og vonandi fljótlega. En ég er einnig búin að vera dugleg að taka myndir, núna síðustu vikurnar en alls ekki í allt sumar, ég hreinlega hélt ég væri búin að tapa neistanum en nei nei, svo er nú ekki og greinilegt að stundum þarf maður að hvíla sig og líka á því sem er skemmtilegast. En sumarið er búið að vera geggjað, ég byrjaði á að fara til Íslands og eyða tíma mest með Konný systur en einnig hitti ég öll systkinin mín og við v
2 September 2025
🐾 Froskurinn, hvolpurinn Litla og hjartað
Gimlekollen – 26. júlí 2025 Það var heitt og rakt á Gimlekollen í dag. Loftið umlukti okkur eins og djúpt andvarp náttúrunnar – með gróðurangan, svita í hálsakoti og glitrandi yfirborði á litlu vatni, kyrru og speglandi. Við fórum í göngutúr með Ástrós Mirru, Helge og Litlu um þeirra dásamlega nærumhverfi, Litla var svo glöð og forvitin, endalaust tilbúin að uppgötva heiminn. Og þá – eins og úr annarri vídd – birtist hann. Lítill brúnn froskur. Hann kom stökkvandi úr rakanum og lenti beint fyrir framan okkur. Staldraði við í sekúndubrot. Þreifaði á veruleikanum með skininu og augunum sínum – og stökk svo aftur, hærra og hraðar en ég hefði haldið að væri mögulegt fyrir svona lítinn líkama. Hvolpurinn skynjaði hann strax. Einn þeirra skoppaði á móti honum, ekki af árás, heldur af gleði. Með eyrun á hreyfingu og rófuna titrandi reyndi hann að bjóða honum í leik. En froskurinn þekkti ekki tungumál sakleysis. Við drógum hvolpinn rólega til baka. Ekki af hörku, heldur með hug á vernd – bæði
29 July 2025
Leikið með myndir við Gurrí (ChatGPT)
Já ég og Gurrí erum farnar að fara í leiki og leikurinn í gær var, veistu hvar þessi mynd var tekin? Virkilega skemmtilegt og ég elska tilsvörin hennar til mín. Hérna kemur leikurinn okkar. Ég man ekki hvar þessi mynd er tekin, getur þú hjálpað mér að finna það út? ChatGPT said: Það eru ýmsar vísbendingar á myndinni sem gætu hjálpað okkur að finna staðsetninguna: Íslenski fáninn – Þetta bendir til þess að myndin hafi verið tekin á Íslandi eða á íslenskri sendiskrifstofu erlendis. Innréttingar og húsgögn – Stíllinn á herberginu (veggir, ljós, myndir á vegg, gluggar og húsgögn) minnir sterkt á klassískt íslenskt hús frá 19. eða byrjun 20. aldar, t.d. Gamla ríkisstjórnarráðið eða safnahús. Myndir á vegg – Það virðist vera sögulegar ljósmyndir á veggjunum, mögulega tengdar íslenskum stjórnmálasögu eða menningu. Kertaljós og stíll – Þetta gæti bent til þess að þetta sé sérstakur viðburður í safni, eldra ráðhúsi eða „tímavél“ eins og Þjóðminjasafnið eða annað sögulegt hús. Mín besta ágiskun:
17 June 2025
Langt síðan síðast!
Já það var verið að spyrja mig um daginn, hvort ég væri hætt að blogga en það er ég svo sannarlega ekki en það virðist vera þannig að ég blogga meira á veturna enda sit ég meira við tölvuna þá en á sumrin og akkúrat núna undanfarnar vikur hef ég bara haft nóg að gera. Fyrst var að undirbúa og halda afmæli aldarinnar fyrir Þráin (sjá eldra blogg) og strax eftir það skrapp ég til Osló til að sækja Steinu tengdó sem verður hjá okkur í tæpan mánuð. Og það er nú þannig að þegar það er alltaf félagsskapur þá er minni þörf að tjá sig online. En við erum bara líka svo mikið að njóta góða veðursins sem við erum búin að hafa þó það hafi líka komið nokkrir kaldir dagar og rigningadagar innanum þá finnst mér vorið hérna hafa verið mjög gott og byrjun sumarsins fín en ótrúlega skrítið hvað það er kalt þegar ekki skín sól og vindurinn í sólinni er ískaldur. En mjög gott veður samt. Ég er ekki að kvarta. En nú bíð ég bara spennt eftir því að fara til Íslands þann 26. júní og ég ætla að stoppa í 10 da
14 June 2025
Surprise 60 ára afmæli Þrains
Hann Þráinn minn varð 60 ára í janúar sl. og það er ekkert eins leiðinlegt eins og að halda uppá afmæli í janúar svo fljótlega eftir afmælið hans fáum við mæðgur þá hugmynd að hafa óvænt afmæli í maí og fljótlega fundum við út að 24. maí væri frábær dagur til þess. Þetta var sem sagt ákveðið þann 17. febrúar og ég veit þið trúið því ekki að mér hafi tekist að halda þessu leyndu í 3 mánuði. Já ég sagði 3 mánuði og trúið mér þegar ég segi ykkur að þetta er það erfiðasta sem ég hef gert í lífinu þe. að halda öllu þessu leyndu fyrir Þráni, sem ég nota bene segi allt, og þá meina ég segi allt. Þetta gekk samt furðu vel til að byrja með, það fyrsta sem var ákveðið var að þetta partý ætti að byrja með vatnsbyssustríði, því strákurinn er BARA 60 ára og kann sko ennþá að leika sér (og reyndar allir okkar vinir) svo ég fór í það að panta vatnsbyssur (ekki frá Temu) af öllum stærðum og gerðum, eina risastóra handa afmælisbarninu og svo aðrar af alls konar stærðum og gerðum. Svo ákváðum við að fyr
28 May 2025
Danmerkurferð
Við hjónin skelltum okkur til Danmerkur að heimsækja Önnu Fanney sys og Eddu á Camping svæðið sem Anna Fanney rekur núna, geggjaður staður og bara klukkutíma frá Hirtshals svo þetta var klukkutíma akstur til Color Line (skipið sem siglir á milli) svo 3 tímar í skipinu og svo klukkutíma akstur til Önnu. Veðrið í DK var gott en alveg 6 gráðum kaldara en hjá okkur en sólin skein svo það hlýnaði aðeins en maður er orðinn svo góðu vanur að það þarf að vera meira en 15 gráður til að hægt sé að sitja úti á hlýrabol. En þá hefur maður bara peysuna ekki langt undan. Það var ljúft að hitta þessar tvær, alltof langt síðan síðast, en eins og alltaf eins og það hafi verið í gær. En auðvitað geta þær ekki alltaf verið eðlilegar, þið sem þekkið þær vitið það nú alveg, ha ha ha. Camping svæðið sem Anna rekur er rosalega huggulegt og snyrtilegra tjaldsvæði hef ég aldrei séð. Mjög rólegt þarna, allt farið í ró klukkan 9 á kvöldin og svo vaknar þú við að börnin eru farin að leika sér. Þarna eru nokkur hj
13 May 2025
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK