BLOG
Sólarupprásin
Á leiðinni heim úr vinnu var heimurinn rétt að byrja að teygja úr sér. Vegirnir lágu kyrrir, vetrarljósið mjúkt og föllegt, og sólin steig hægt upp yfir hæðirnar, næstum óséð. Ég ók áfram í þessari stillu, umvafin kyrrðinni, og fann hvernig augnablikið festist — ekki bara á myndunum, heldur líka innra með mér. Svona morgnar minna mig á að fegurðin býr oft í því sem gerist hljóðlega, á meðan dagurinn er enn að vakna. Þess vegna elska ég að vakna snemma og mér persónulega finnst sólarupprásin það fallegasta í heimi.
9 January 2026
Göngutúr númer 2 á árinu
Ég skellti mér aftur í göngutúr með myndavélina, bauð Elvis með mér sem var ótrúlega næs, því ég er búin að fatta það að ég hef nánast ekki farið út að labba með myndavélina síðan Erro dó, svo þá er um að gera að fá lánaðan hund hjá nágrannanum til að ýta við mér. En jú nágranninn er sá sem fór nú oft, oftar en ég með Erro en nú er hann á hækjum svo þá verður maður að aðstoða aðeins. En ég labbaði uppað fossinum sem er 10 mín frá okkur og var að vona að hann væri í meiri klakaböndum en hann var, en jú jú það er alltaf fallegt þegar búið er að snjóa aðeins en þetta var þó ósköp lítið, það spáir meiri snjókomu svo ég skrepp bara aftur út fljótlega.
8 January 2026
Göngutúr með myndavélina
Ég fór að ganga með myndavélina mína í fyrsta skipti í marga mánuði. Það var nokkuð góð tilfinning svo þið munið líklega sjá fleiri svona stundir hér — og já, plakatbúðin er ávallt opin svo endilega kíkið þangað ef ykkur vantar mynd uppá vegg hjá ykkur. www.mirra.no Í þessari göngu sá ég ljósið, ég sá engla og ég sá hvíta dúfu. But I also saw all the beautiful houses in my neighborhood.
5 January 2026
Ótrúlegur haustmorgunn
Ótrúlegur haustmorgunn í gær — í alvöru, hver getur farið í vinnuna þegar útsýnið er svona? 😍🍁 #TooBeautifulToWork #AutumnMagic #MorningWalk #FallInNorway #NatureInspires #EverydayBeauty
15 October 2025
Haustsólin í skóginum
Það er alveg magnað að labba um í skóginum þegar haustsólin skín nánast á hlið og skapar þetta ævintýralega umhverfi sem skógurinn getur verið.
6 October 2025
Haustlitirnir á göngustígnum
Ég fór í göngutúr aðallega til að taka myndir í haustlitunum sem ég og gerði en eins absúrt að það kann að þykja þá enduðu sem mínar uppáhaldsmyndir úr þeim göngutúrnum þessar sem eru allar teknar af föllnum laufum á göngustígnum. Það var bara eitthvað svo skemmtilegt við það hvað það var alltaf eitt lauf sem skar sig út frá hinum.
6 October 2025
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK