BLOG
Danmerkurferð
Skruppum til Önnu Fanneyjar og Eddu um síðustu helgi, fengum geggjað veður á laugardeginum en hinir dagarnir voru hvort eð er ferðadagar svo veðrið skipti minna máli þá. Kíktum aðeins í kringum okkur og urðum dolfallin af dönskum kirkjugörðum, þvílík fegurð og vel snyrt. Greinilegt að það er starfsfólk garðanna sem sér um að snyrta leiðin líka, ekki bara garðinn, því það finnst ekki eitt einasta illa snyrt leiði. Skoðuðum líka eina litla sæta myllu. Látum myndirnar bara tala sínu máli. Takk fyrir okkur elsku mæðgur. Hlakka til að sjá ykkur í haust. Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.
8 June 2026
Neiiiiiii, ekki aftur!
Jú jú auðvitað aftur og aftur meðan þú átt ketti. Nei ég meina hvað haldiði að hafi skeð? Í fyrrinótt þá vakna ég við það að verða bitin í fingurinn og ég meina sko fingurgóminn, ég tek um puttann og nudda hann og hugsa bara eitthvað... veit ekki hvað og sný mér á hina hliðina og sofna aftur, verð heitt og tek sængina af mér að hluta til og vakna þá aftur við sting eða bit í mjöðmina og þá hugsa ég andskotinn! Er komið KLEGG hérna inn í herbergið mitt og bara bítur mig stanslaust! Ég opna gluggann meira til að kæla herbergið og leggst svo aftur og vef bara sænginni vel utan um mig og vonast til að kafna ekki undir henni. Sofna svo bara og restin af nóttinni var tíðindalaus. Svo þegar ég vakna rámar mig eitthvað í þetta en er ekkert að velta því mikið fyrir mér. Stend upp og klæði mig í buxur og bol og kippi svo einni peysu sem liggur á pullu við rúmið og er að klæða mig í ermina á henni þegar mús stekkur út úr erminni og undir rúm. Já krakkar, ég sagði mús. Það var mús í erminni á peys
11 May 2026
Með lagið á heilanum
Það þarf stundum ekki nema eitt orð til að kveikja heilt lag í hausnum á mér — og allt í einu er dagurinn orðinn að tónlist. 🎶 Hver hefur ekki upplifað það að vera með eitt ákveðið lag á heilanum í heilan dag, og kannski lag sem er svo leiðinlegt og pirrandi að maður er að verða kreisí? Ég upplifi það að fá lag á heilann á hverjum degi, það er bara spurning í hvaða aðstæðum ég er í, við hvern ég tala og hvað talað er um sem stýrir því hvaða lag kemur. Td. í morgun þá fór ég með bílinn á verkstæði þar sem þeir gleymdu að núllstilla meldinguna sem tölvan hafði komið með um smurningu um daginn, en þeir voru sko búnir að smyrja bílinn svo þetta var stutt stopp, og ég vissi að þeir höfðu lokað í rúma viku í kringum páskana, svo ég fór að sjálfsögðu að spjalla við skrifstofustjórann um það hvort hann hefði ekki haft gott frí og hann hélt það nú, hann hefði farið með fjölskylduna til Phonix eða Fönix eins og ég heyrði það. Já og hvað lag haldið þið að ég sé með á heilanum núna? Já auðvitað,
9 April 2026
Kanarí ferð 2026
Við hjónin skelltum okkur í Kanaríferð með Önnu Svölu og Anders vinum okkar, ásamt mömmu Önnu, henni Hönnu Birnu og Ellu vinkonu hennar. Anders varð fimmtugur nýlega og er hann unglingurinn í hópnum, sú elsta 82, þannig að það fór lítið fyrir kappaksturleikjum eða sjóleikjum eins og við gerðum fyrir 22 árum þegar við vorum síðast á Kanarí, enda bauð veðrið ekki upp á það. Þó var búið að panta fyrirfram einhverja geggjaða bátsferð, með stoppi einhvers staðar og þar átti að vera hægt að fá að kafa og svo átti að borða paella um borð og hafa það huggulegt og kósí en öllum svona ferðum var aflýst vegna veðurs. Svo við gerðum nú bara það besta úr því sem við höfðum, lágum í sólbaði í 40 mín og hlupum svo inn eða reyndum að sitja úti undir sólhlífinni. Skúrirnir voru svakalegir og í eitt skiptið hélt ég hreinlega að flugvél hefði lent á húsinu þegar himnarnir opnuðust og það var skellt á okkur 20mm regni á 3 mín. En ég tók samt nokkrar myndir en þær voru oftast undir hlíf eða á hlaupum til a
27 March 2026
Litaglaða konan
Já það fer víst ekki fram hjá neinum að ég er frekar litaglöð. Held ég hafi alltaf verið það en einhvern veginn ýtt því til hliðar á ákveðnum tíma í lífinu en núna eftir að ég flutti til Noregs þá hef ég leyft mér að kaupa þau föt sem mig langar í, ekki það sem er eins og allir aðrir vilja og nota. Sama á við um heimilið og umhverfið mitt. En það er þó einn galli á þessu og það er að maðurinn minn er ekki eins litaglaður og ég. Já þarna kom punktur því þetta getur alveg verið dáldið erfitt og maður er ekkert alltaf mjög klár í því að miðla málum eins og ætti að gera. En við reynum. En sko þó ég sé mjög litaglöð þá langar mig ekkert að stofan hjá okkur sé gul og rauð og blá og þess háttar, ég hef alveg smekk fyrir hönnun, litum og útliti. Þess vegna vel ég gráan sófa en litskrúðuga púða og þarna mætumst við Þráinn með það klassíska og svo kreisí Stína. En þegar maður skoðar samt mublur og punt sem við eigum þá hefur litagleðin alltaf verið hjá okkur, sérstaklega grænt og orange. Okkur l
17 February 2026
Áhugamálin eru svo mikilvæg!
Já þau eru það svo sannarlega mikilvæg áhugamálin okkar. Þau geta verið alls konar, frá því að fara í bíó, smíða, skera út í við, gera upp gamla bíla, prjóna, hekla, lesa bækur, myndlist, ljóðlist, ljósmyndun og ég veit ekki hvað og hvað. Já áhugamálin geta verið hvað sem þér finnst skemmtilegt að gera. En það er mjög mikilvægt að eiga áhugamál og hlakka til að vinna við þau oft og jafnvel hvern einasta dag. Sérstaklega þegar við eldumst og höfum ekki lengur um börnin okkar að hugsa og / eða aldraða foreldra. Núna stöndum við Þráinn á þeim tímamótum að vera farin að sjá fram til þess tíma sem við hættum að vinna, árin eru færri en 5 svo þá er tímabært að efla og bæta við áhugamálin sín, svo ekki komi leiði að okkur. En okkar staða er góð þar sem okkur hlakkar svo til að geta haft alla morgna eins og laugardagsmorgnana, vakna snemma, fá sér kaffi, spjalla um lífið og tilveruna, hlusta á músík, kveikja upp og fara svo að sinna áhugamálunum sínum. Þetta er til dæmis eitt af mínum! En ég á
10 January 2026
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK